Félagi minn hringdi í mig og sagði mér að það væri nokkur hópur af gömlum Mercedes-Benz vörubílum á Selfossi sem verið væri að undirbúa til útflutnings (líklega til Afríku) og sagði að ég hefði gaman af að skoða þá.
Ég lagði land undir fót og tók myndavélina með.
Hér er hópurinn. (vantar tvo bíla sem þá og þegar voru komnir á fleti)
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/01.jpg[/img]
Hér er svo mynd af þeim sem komnir voru á fleti
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/02.jpg[/img]
Þessi hérna nær röllti nú bara í gangi þegar mig bar að
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/03.jpg[/img]
Hér er svo mynd af hverjum og einum ú röðinni. Þessi var fremstur í röðinni
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/04.jpg[/img]
Svo var einn með sæmilegum kranastert
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/05.jpg[/img]
Þessi var fallegur með framdrifi og alles.... Fannst synd að sjá þennan fara. væri til í að eiga þennan
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/06.jpg[/img]
Þessi var ekki svo harla slæmur heldur. Dálítið voru samt hurðirnar á honum orðnar þreyttar
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/07.jpg[/img]
Hér var einn eldgamall og orðinn nokkuð fúinn.
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/08.jpg[/img]
Hérna er einn mjög gamall líka, enda ryðmaurinn farinn að naga hann töluvert
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/10.jpg[/img]
Þessi var alveg frábærlega lélegur. En samt uppi standandi.... Magnaður er Mercedes..
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/09.jpg[/img]
Og hér var einn bara ágætlega útlítandi
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/11.jpg[/img]
Og svo var í röðinni einn svona af yngri gerð...
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/12.jpg[/img]
Og í lokin ein svona sérstök mynd í kveðjuskyni..
[img]http://www.stjarna.is/images/Vorubilar/13.jpg[/img]
Kúlunebbarnir kvaddir
#1Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...