#12
Mér finnst ekkert að því ef menn koma með RAUNSÆGT verð og óska eftir tilboðum, en þessar, verð: tilboð óskast þetta eru hálfgerðir Nígeríu svikarar fyrir mér því þeir reyna flestir að græða á fáfræði fólks. Það á að gefa þessum auglýsingum beint rautt hiklaust.

#13
Ekkert að því að koma með verð og óska eftir tilboðum. Þannig ganga líka hlutirnir fyrir sig.

Hinsvegar þegar óskað er eftir tilboði án þess að neitt verð sé gefið upp, þá er seljandinn að vonast eftir að fá jafnvel hærra verð en hann er með í huga og vill ekki skemma fyrir sér með því að gefa það upp. Málið er að þetta er algert bull, því kaupandinn er í öllum tilvikum með lægra verð í huga en seljandinn og þetta kemur því aldrei til. Oftast gerir þetta seljandanum einmitt erfitt fyrir frekar en hitt, því hann fær þá líklega bara tilboð sem er mjög lágt, því menn byrja eins neðalega og hugsast getur. Þá getur oft verið erfitt að pumpa verðið upp frá þeim lága byrjunarpunkti. Tilboð án verðs virka ekki! ...það er mín skoðun.

Hvort það eigi að banna það, er svo annað mál.
Sveinn

#14
Mér finnst pirrandi þegar ég sé auglýsingar og það er ekkert verð á þeim bílum sem mér langar í en þá tek ég nú bara oftast upp símann og hringi og heyri í kallinum og lætur hann mig þá fá verð og meiri upplýsingar um bílinn!

En svo annað alveg sama þótt þið mynduð banna "verðlausa" bíla þá koma alltaf einhverjir kallar inn sem lesa ekki reglurnnar sem er nú örugglega meiri hlutinn, og pósta inn auglýsingu um bílinn sinn og segja svo meiri upplýsingar í síma .... og hvað er þá gert er þeim eytt eða læst?
Nátúrulega bara heimskulegt að eyða þeim því þá kannski sér maður aldrei auglýsinguna þar sem t.d. ég skoða ekki stjörnuna á hverjum degi.

Bara mín skoðun ég er alveg sammála ykkur að banna þessar auglýsingar ég sé bara ekki að það sé hægt.
W126 500se 85'
Ford Mustang GT 01'
Ford Econoline 79'
John Deere Model M 49'
John Deere Model M 50'
MF 135

Hjalti Þórhallsson

#15
út með allar auglýsingar sem ekki fara eftir reglum, óháð hversu spennandi þær eru.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#17
Ásgeir Yngvi skrifaði:út með allar auglýsingar sem ekki fara eftir reglum, óháð hversu spennandi þær eru.
Voða væl er þetta útaf auglýsingum. Eigum við ekki að bætra við einum spjallþræði sem heitir Þjóðarsálin svo fólk geti kvartað og vælt útaf engu? :roll:

Án þess að vera með eitthvað bögg við þig Ásgeir, þá finnst mér ekki skipta neinu máli hvort auglýsingar séu með verðmiða eða ekki. Kanski þessvegna sem ég er ekki með account á live2cruise. Sagði einhvenrtímann að það væri það síðasta sem ég myndi gera á alnetinu :)
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

#18
Allir sem óska eftir tilboði eru með einhverja tölu sem þeir sætta sig við í hausnum, sé ekki að það drepi neinn að skrifa þá tölu inn.

Ég vil svo benda þeim sem vita ekkert hvað þeir vilja fyrir bílinn að fara með hann á bílasölu og láta meta hann fyrir sig og pósta því svo í auglýsinguna.
Þeir sem nenna því ekki einusinni geta þá bara notað Uppboðshornið.

Allveg óþolandi að þurfa að draga það upp úr mönnum hvað þeir vilja fyrir hlutina. Ég persónulega nenni því ekki.
Jón Ottesen
S. 8997383
jonott@simnet.is


Mercedes Benz 300 E 24V "89
Mercedes Benz E 430 4Matic "00

#19
Sammála síðasta ræðumanni þetta snýst um viðskipti. Svona feimnismál eins og verð á bílum er asnalegt, það er ekki eins og seljandi sé að koma útúr skápnum.
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

#20
andrz skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:út með allar auglýsingar sem ekki fara eftir reglum, óháð hversu spennandi þær eru.
Voða væl er þetta útaf auglýsingum. Eigum við ekki að bætra við einum spjallþræði sem heitir Þjóðarsálin svo fólk geti kvartað og vælt útaf engu? :roll:

Án þess að vera með eitthvað bögg við þig Ásgeir, þá finnst mér ekki skipta neinu máli hvort auglýsingar séu með verðmiða eða ekki. Kanski þessvegna sem ég er ekki með account á live2cruise. Sagði einhvenrtímann að það væri það síðasta sem ég myndi gera á alnetinu :)


En nú held ég að fleiri séu sammála mér en þér í þessu máli.

En þetta má þjóðarsálinna verðuru að ræða við stjórn klúbbsins ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin
cron