Fréttabréf
1.tb 3.árgangur, janúar 2007
Bjórkvöld
Ákveðið hefur verið er að halda bjórkvöld á veitingahúsinu Rex í Austurstræti föstdaginn 26.janúar n.k. Þar ætlum við að hittast yfir spjalli og léttum veitingum og vonandi að við sjáum sem flesta. Húsið opnar fyrir okkar félagsmenn klukkan 21:00, en við verðum alveg sér og út af fyrir okkur fyrstu klukkustundirnar.
Myndakvöld
Myndakvöld verður haldið þann þriðjudaginn 27. febrúar n.k. Sýndur verður seinni hluti myndarinnar “Fascination” sem er framleiðslusaga Mercedes-Benz bifreiða frá upphafi. Fyrri hluti myndarinnar var sýndur í desember síðastliðin við fádæma undirtektir sýningargesta. Ekki hefur þegar þetta fréttabréf fór í prentun náðst samningar um hvaða sýningarstað við fáum, en sama hvar það verður að þá mun húsið opna 20:00 og sýning hefjast kl 20:30.
Þeir sem hafa áhuga á að sjá myndina eru beðnir um að hafa samband við félagið með tölvupósti á vefstjorn@stjarna.is eða hringja í síma 897-8597(Rúnar) eða 899-5277(Sveinn). Upplýsingar um sýningarstað verða birtar á spjallvef klúbbsins og einnig verður hægt að nálgast upplýsingar um það hjá ofantöldum aðilum með ofantöldum hætti er nær dregur.
Kringlan í vetur
Við munum reyna að halda uppteknum hætti með að hittast í Kringlunni í vetur. Í fyrra var reynt að mæta síðasta mánudagur í hverjum mánuði. Það fyrirkomulag var ágætt, en eitthver var samt misbrestur á áminningum inn á spjallinu. Við viljum því benda mönnum á að hafa þessi mánudagskvöld framvegis tekinn frá og gott er að nota dagbók í GSM símum til að minna sig á þessi kvöld. Reynum nú að gera þessi kvöld fjölmenn og skemmtileg og mætum í Kringluna 29. janúar, 26. mars og 30 apríl. Ekki er formlegur hittingur 26. febrúar, þar sem myndakvöld er kvöldið á eftir. Óformlegur hittungur verður hugsanlega boðaður í febrúar á spjallvefnum okkar.
Endurnýjun aðildar
Nú er mjög stutt í endurnýjun aðildar að félaginu. Gjaldkeri vill endurtaka að þeir sem vilja spara sér seðilgjaldið geta greitt félagsgjaldið (2.500kr) inn á reikning félagsins; 1185-26-2710 kt. 450304-2710. Fyrir 10. febrúar n.k. Þeir sem ekki eru búnir að greiða þá munu fá gíróseðil. Tekið skal aftur fram að þeir félagar sem nýlega hafa gengið til liðs við félagið og greitt hafa 3500kr núna á tímabilinu frá 1. september til 1. desember 2006 eiga ekki að endurnýja aðild sína að félaginu núna, heldur um áramótin 2007-2008.
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Fréttabréfið á leið í póst
#1Nokkuð var um að menn kvörtuðu yfir því að fréttabréf félagsins hafi ekki verið birt síðast hér á spjallinu líka. Hér kemur því afrit af fréttabréfinu sem núna er að fara í póst.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...