Síða 2 af 4

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 12 Jún 2013, 22:10
frá Benni
Komin er endaleg dagskrá fyrir Afmælisferðina, sjá í fyrsta innlegginu :tumbsup:

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 14 Jún 2013, 04:18
frá Hlynzi
Þetta verður fjör, ég skelli mér bara beint norður á sunnudeginum og reikna með að vera kominn fyrir kvöldmat.

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 14 Jún 2013, 22:02
frá HAMAR
http://www.vb.is/frettir/92465/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 15 Jún 2013, 21:30
frá sveinn
Fór í morgun og fylgdi klúbbnum úr hlaði í hringferðina. Þar sem ég hafði ekki komið á safn Fornbílafjelags Borgarfjarðar og ætlunin var að fara þangað, þá ákvað ég að skella mér með til Borganess og kíkja á bílasafnið.

Hér eru nokkrir bílar sem voru mættir fyrir utan Öskju í morgun;

230CE 1991 280SE 1984 300TD 1989 230.6 1975 300SL 1991 Og þessi nýi A Benz var fenginn að láni hjá Öskju til hringferðarinnar Framkvæmdastjóri Öskju afhendi formanni viðurkenningu í tilefni 10 ára afmælisins. Þoka hafði verið í bænum en henni létti fljótlega, hér eru bílarnir komnir undir Hafnarfjall. Þessi glæsilegi w126 var á planinu fyrir utan safnið í Borgarnesi, ný sprautaður og glansandi. Nokkrir Benzar samankomnir. Þröstur mættur á skrifstofu og bjórkæli ferðarinnar. Gamall Benz slökkviliðsbíll sem stendur fyrir utan safnið.

Tveir Benzar eru svo á safninu sjálfu Annars er mikið af athyglisverðum bílnum þarna og sérstaklega eftirtektarvert að þarna eru ekki USA bílar í meirihluta eins og vanalega, heldur reyndar í töluverðum minnihluta :wink: Þessi klessti 300D W123 var svo fyrir aftan safnið.

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 16 Jún 2013, 00:27
frá JBV
Gaman af þessari samantekt hjá þér Sveinn. Takk fyrir samverustundina í Öskju í morgun þið sem mættuð - og Öskju fólkinu fyrir flottar veitingar og gjafir :tumbsup2:

Hringförunum óska ég góðrar ferðar, verst að geta ekki fylgt þeim lengra eftir en upp í Mosó. Engu að síður ánægjulegt að fá að fylgja hópnum úr hlaði. :D

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 16 Jún 2013, 01:15
frá Stjórn MBKÍ
Myndir sem teknar voru í ferðinni í dag:

Borgarnes: Skagafjörður

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 16 Jún 2013, 04:48
frá viktorE300
er plönuð samkoma a akureyri eða?

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 16 Jún 2013, 11:44
frá Lárusson
viktorE300 skrifaði:er plönuð samkoma a akureyri eða?
Ferðalangar eru á Akureyri í dag og verða þar á morgun. Dagskráin gerir ráð fyrir að við njótum "Bíladaga á Akureyri", en gaman væri að hitta heimamenn og taka einn Benz rúnt. Eins er með í för splunkunýr A-Class frá Öskju sem gaman væri að geta sýnt ykkur.

Segðu okkur hvar og hvenær við eigum að hittast og við mætum hressir :)

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 16 Jún 2013, 17:43
frá Reynir Ari
Er ekki fint ad hittast um 9 leytid? Hvar væri best ad hafa samkomuna?

Re: Hringferð um landið í tilefni af 10 ára afmæli klúbbsins

Innsent: 16 Jún 2013, 22:47
frá Stjórn MBKÍ
Fleiri myndir frá hringferðinni, nú er hópurinn staddur á Bíladögum á Akureyri.

Flugminjasafnið við Akureyrarflugvöll Garðar að upplýsa væntanlegan félagsmann um kosti aðildar að MBKÍ :lol: Veðrið leikur við menn 8)