Frumsýning á nýjum A-Class í Öskju

#1
Mikil spenna og eftirvænting hefur ríkt eftir nýjum Mercedes-Benz A-Class. Biðin eftir bílnum er nú á enda því hann verður frumsýndur í bílaumboðinu Öskju nk. laugardag 17. nóvember. Þessi nýja kynslóð bílsins er mikið breytt frá fyrri gerð hvað varðar hönnun og aksturseiginleika sem þykja afbragðsgóðir. Þessi netti lúxusbíll hefur vakið mikla athygli nú þegar fyrir fyrir fagurlega hönnun að innan jafnt sem utan. Nýtt grillið að framan er fallega hannað sem og straumlínulagaðar hliðar bílsins og sportlegur
afturhluti hans. Mikið er lagt upp úr vönduðu efnisvali í innréttingunni sem þykir sportleg og vel hönnuð.

Mercedes-Benz setur ný viðmið í tæknibúnaði með A-Class en þar verður m.a. aðgengi fyrir iPhone. Hægt er að tengja hann við tæknibúnað bílsins og nýta möguleika símans til fulls. Nýjar bensín- og dísilvélar verða í boði í nýjum A-Class sem eru afkastamiklar en einnig eyðslugrannar og umhverfismildar. Þannig verður koltvísýringslosunin aðeins um 99 g/km í umhverfismildustu vélinni. A-Class verður í boði með tveimur bensínvélum, 1,6 og 2,0 lítra. Þá verða aflmiklar dísilvélar einnig í boði í nýju kynslóðinni. Allar gerðirnar í nýju A-línunni verða með ECO start/stopp búnaði. Hægt verður að fá bílinn með nýrri sex gíra beinskiptingu eða 7G-DCT sjálfskiptingu.

Frumsýningin á A-Class fer fram í Öskju að Krókhálsi 11 nk. laugardag kl. 12-16.


Garðar Lárusson
s. 892-0084

500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987
cron