Síðasta samkoma sumarsins - mán. 31. ágúst v/Smáralind

#1
Mercedes-Benz klúbbur Íslands (MBkÍ) býður til samkomu ("hitting") mánudaginn 31. ágúst kl. 20:30.

Ef veðrið verður gott og mætingin góð þá er möguleiki á því að við getum tekið síðasta rúnt sumarsins.

Við bjóðum alla velkomna á þessa samkomu klúbbsins óháð því hvort sem þeir aki um á Mercedes-Benz eða ekki. Ekki er heldur skylda að vera meðlimur í klúbbnum.
Það eina sem við setjum sem "skilyrði" er að menn hafi áhuga.

Staður og stund:
Smáralind - nýja bílahúsið við vesturenda Smáralindar
Mánudagurinn 31. ágúst 2009, kl. 20:30

Ef einhverjar breytingar verða á staðsetningu þá verður það tilkynnt hérna.

Ath. fyrir þá sem mögulega mæta á sérstaklega háum bílum (t.d. Unimog eða Sprinter) þá er innkeyrslan í bílageymsluna að austan hæst en þá er farið framhjá Select stöðinni og meðfram nýbyggingunni inn í "kjallarann".

Ath. að við fáum að vera þarna með því skilyrði að menn gangi snyrtilega um svæðið.
Að gefnu tilefni er HRAÐAKSTUR OG SPÓL Á SVÆÐINU ER STRANGLEGA BANNAÐ!!
Við áskilum okkur rétt til þess að tilkynna húseiganda allt um slíkt, þ.m.t. með myndum og upplýsingum um gerendur
:!:

Hér er kort af Já.is sem sýnir staðsetninguna (MBkÍ logoið er þar sem bílastæðahúsið er)
[img]http://safnid.siminn.is/safnid/webui/_x ... t_OsS9KT3q[/img]


Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Síðasta samkoma sumarsins - mán. 31. ágúst v/Smáralind

#3
Ætli sé ekki rétt að ég komi og spóli svolítið....... SVO ÉG VERÐI ENDANLEGA REKINN ÚR FÉLAGINU.....!!!!!!!!!!
:fyndid2: :fyndid2: :fyndid2: :fyndid2: :fyndid2:

NEI ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ VERA MEÐ EITTHVERN GLANNAGANG....! segir Benni!

Á ekki eitthver sjálgfskiptan 200 dísil til að lána mér á samkomuna.... :lol: :lol: :lol:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)