Samkoma fimmtudaginn 30. apríl 2009 - við Smáralind

#1
Að þessu sinni verður breytt út frá þeirri venju að hafa "hittinginn" síðasta mánudaginn í mánuðinum.
Þess í staðinn verður samkoma fimmtudaginn 30. apríl þar sem daginn eftir er frídagur (1. maí ;) ). Nú er lag að fá sem flesta til þess að mæta.
Að lokinni samkomu er stefnan að taka rúnt saman.

Við bjóðum alla velkomna á þessa samkomu klúbbsins óháð því hvort sem þeir aki um á Mercedes-Benz eða ekki. Ekki er heldur skylda að vera meðlimur í klúbbnum.
Það eina sem við setjum sem "skilyrði" er að menn hafi áhuga.

Staður og stund:
Smáralind - nýja bílahúsið við vesturenda Smáralindar
Fimmtudagurinn 30. apríl 2009, kl. 20:30

Ef það eru einhverjir sérstaklega háir bílar í hópnum (t.d. Unimog eða "SúperSprinter" :wink: ) þá er innkeyrslan að austan hæst en þá er farið framhjá Select stöðinni og meðfram nýbyggingunni.

Hér er mynd af turninum eins og hann á að líta út:
[img]http://www.bygg.is/images/stories/verk/ ... _litil.jpg[/img] (af vef BYGG)

og hér er kort af Já.is sem sýnir staðsetninguna (MBKÍ logoið er þar sem bílastæðahúsið er ;) )
[img]http://safnid.siminn.is/safnid/webui/_x ... t_OsS9KT3q[/img]
Þeir sem eru með GPS og rata ekki geta notfært sér GPS hnitin sem er að finna á þessari mynd :lol:


Benedikt Hans Rúnarsson
cron