#22
Jæja strákar mínir, ég skeit illilega á mig með samkomu kvöldsins. Það var ekki eins þægilegt og afslappað að mæta á morgunvakt á Bylgjunni með Gissuri Sigurðssyni kl. 05:30 í morgun eftir eins mánaðar sumarfrí og ég átti von á. Af þeim sökum sveif á mig einhver nettur svefnhöfgi upp úr kvöldmat í kvöld og á slaginu 22:38 sló því niður í hausinn á mér að sennilega væri ég að gleyma einhverju. Ég lofa að mæta næst en tek undir með sumum sem hér skrifa að maður veður kannski ekkert eld og brennistein til að norpa í suðvestannepju, regni og trekk úti á bílaplani þótt vissulega sé áhugamálið fullkomlega góðra gjalda vert. Nú þarf að leggjast í rannsóknarvinnu og finna rúmgott og upplýst innanhússbílastæði til afnota um vetur og haust en koma svo saman úti í guðsgrænni náttúrunni að sumarlagi.

Það ber vott um sérstakan smekk, Benedikt H. Rúnarsson, að þú álítir nýju Hagkaupsverslunina í Garðabæ stórglæsilega. Þetta steingráa kjarnorkubyrgi sem er ekki í nokkru samræmi við hverfið við hliðina á er þvílík hrákasmíð að lager Efnaverksmiðjunnar Sjafnar sem þarna stóð frá um það bil 1975 til 1998 (var síðar téð hjólbarðaverkstæði) var hrein unun á að horfa þótt sá hjallur héldi orðið hvorki vindi né vatni. Þarna starfaði undirritaður sem venjulegt lagerskítseiði á lyftara sumurin 1990 og 1991 og grætur enn fögrum tárum yfir minningunum. Já, þá var maður með sítt hár, drakk landa í Mix og hlustaði á Metallica og Slayer! Og hve margir hér lifðu það að starfa hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, því ágæta opi niður til helvítis!?!

Ég klikka ekki á næstu samkomu, hugheilar kveðjur,

Atli

P.s. Ég hlusta enn á Metallica og Slayer.
Auk þess legg ég til að Karþagóborg verði lögð í eyði.

#23
atligu skrifaði:Jæja strákar mínir, ég skeit illilega á mig með samkomu kvöldsins. Það var ekki eins þægilegt og afslappað að mæta á morgunvakt á Bylgjunni með Gissuri Sigurðssyni kl. 05:30 í morgun eftir eins mánaðar sumarfrí og ég átti von á. Af þeim sökum sveif á mig einhver nettur svefnhöfgi upp úr kvöldmat í kvöld og á slaginu 22:38 sló því niður í hausinn á mér að sennilega væri ég að gleyma einhverju. Ég lofa að mæta næst en tek undir með sumum sem hér skrifa að maður veður kannski ekkert eld og brennistein til að norpa í suðvestannepju, regni og trekk úti á bílaplani þótt vissulega sé áhugamálið fullkomlega góðra gjalda vert. Nú þarf að leggjast í rannsóknarvinnu og finna rúmgott og upplýst innanhússbílastæði til afnota um vetur og haust en koma svo saman úti í guðsgrænni náttúrunni að sumarlagi.

Skemmtileg Atli :lol:

Ég verð þó að vera sammála þér um einstakan ljótleika byggingarinnar en það er þó ekki rétt hjá þér að það skeri sig úr í hverfinu. Ef þú lítur hinum megin við götuna sérðu líklega ljótustu byggingu garðabæjar, Garðaskóla.

Steingrár viðbjóður sem hægt væri að líkja við rússneska stríðsvélaverksmiðju í seinna stríði.

Endilega mættu nú samt á næstu samkomu :wink:

P.s Slayer eru þéttir 8)
Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn

#24
atligu skrifaði:Jæja strákar mínir, ég skeit illilega á mig með samkomu kvöldsins. Það var ekki eins þægilegt og afslappað að mæta á morgunvakt á Bylgjunni með Gissuri Sigurðssyni kl. 05:30 í morgun eftir eins mánaðar sumarfrí og ég átti von á. Af þeim sökum sveif á mig einhver nettur svefnhöfgi upp úr kvöldmat í kvöld og á slaginu 22:38 sló því niður í hausinn á mér að sennilega væri ég að gleyma einhverju. Ég lofa að mæta næst en tek undir með sumum sem hér skrifa að maður veður kannski ekkert eld og brennistein til að norpa í suðvestannepju, regni og trekk úti á bílaplani þótt vissulega sé áhugamálið fullkomlega góðra gjalda vert. Nú þarf að leggjast í rannsóknarvinnu og finna rúmgott og upplýst innanhússbílastæði til afnota um vetur og haust en koma svo saman úti í guðsgrænni náttúrunni að sumarlagi.

Það ber vott um sérstakan smekk, Benedikt H. Rúnarsson, að þú álítir nýju Hagkaupsverslunina í Garðabæ stórglæsilega. Þetta steingráa kjarnorkubyrgi sem er ekki í nokkru samræmi við hverfið við hliðina á er þvílík hrákasmíð að lager Efnaverksmiðjunnar Sjafnar sem þarna stóð frá um það bil 1975 til 1998 (var síðar téð hjólbarðaverkstæði) var hrein unun á að horfa þótt sá hjallur héldi orðið hvorki vindi né vatni. Þarna starfaði undirritaður sem venjulegt lagerskítseiði á lyftara sumurin 1990 og 1991 og grætur enn fögrum tárum yfir minningunum. Já, þá var maður með sítt hár, drakk landa í Mix og hlustaði á Metallica og Slayer! Og hve margir hér lifðu það að starfa hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, því ágæta opi niður til helvítis!?!

Ég klikka ekki á næstu samkomu, hugheilar kveðjur,

Atli

P.s. Ég hlusta enn á Metallica og Slayer.
:fyndid:
Góður Atli, reyndar þá er ég búinn að vera að versla hjá Hagkaupum við Garðatorg undanfarin ár og var sú verslun, þ.e. húsnæðið að innan sem að utan, fyrir löngu orðið illa farið og ljótt svo að breytingin er ansi mikil og verslunin sjálf bara ansi flott að innan :wink:

Mér finnst reyndar byggingin, eins og hún lítur út að framanverðu svo sem í lagi miði maður við svona verslunarkjarna almennt en er alveg sammála þér með að þetta er ekki í neinu samræmi við hverfið þarna fyrir aftan :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

#25
Tjörvi: Ég verð nú að hafa skoðun á Garðaskóla líka fyrst ég gekk bæði í Flataskóla, hann og FG þau 22 ár sem ég bjó í Garðabæ. Ég er sammála þér því að hann er a.m.k. orðinn alveg hörmung núna eftir að hann tók upp á því að líkja eftir æxlun kóralla og vaxa út um víðan völl í einhvers konar klessum. Þegar ég var þarna við nám árin 1985 - 1989 var þetta bara ein bygging og vissulega grá en í minningunni prýðir hana einhver nostalgískur dýrðarljómi :cry: