G-WAGEN MYNDIR

#1
Þar sem nokkuð líf er farið að færast í umræður um G-wagen jeppana hérna á síðunni, vil ég ekki láta mitt eftir liggja og ætla að sína ykkur þær myndir sem ég á í fórum mínum af þessum eðal jeppum ásamt smá upplýsingum um þá, mismiklar þó. Sumar hafa byrst hérna áður en aðrar ekki. Þar sem þetta er "slatti" af myndum kem ég til með að byrta þær í áföngum eftir því sem ég hef nennu til!

Hér fyrir neðan er 230GE jeppinn sem stóð lengi númerslaus í porti við Garðarstræti og er jafnframt fyrsta myndin mín af G-wagen og fyrsta myndin sem ég byrti hérna á stjarna.is úr mínu safni. Eftir að Ztebbsterinn auglýsti hérna á spjallinu síðla árs 2004, eftir varahlutabíl fyrir sinn hvíta, skelti ég nokkrum myndum af þessum 230GE hérna inn fyrir hann á sínum tíma. Í framhaldinu keypti Ztebbi þennan og notaði m.a. þakið, hurðir og eitthvað fleira til að laga hvíta G-wagen-inn sem hann keypti tjónaðan eftir veltu. Þessi blái var í eigu farmkvæmdastjóra Gamlhúsa ehf, notaður sem "gætabíll" við Laxá í Kjós í nokkur sumur.
[img]http://img442.imageshack.us/img442/9140/dsc01321ya9.jpg[/img]
Þessi 230GE var auglýstur hérna á spjllinu á sínum tíma af manni frá Hvolsvelli. Sem endaði með því að JónasH, einn helsti sérfræðingur Unimog á Íslandi, keypti hann og er að setja í hann 300 Diesel vél í jeppann, ef hann er þá ekki búinn að því.
Myndirnar eru af 230GE bíl Jónasar, fyrir og eftir strípur :lol:
[img]http://memimage.cardomain.net/member_im ... 1_full.jpg[/img]
[img]http://img67.imageshack.us/img67/6393/g ... 705os3.jpg[/img]
Þennan aldna G-wagen 280GE rakst ég á snemma í sumar þar sem hann stóð við Hamborgarbúllu Tomma. En í hliðarrúðunni var sölutilkynning ásamt helstu uppl. um þennan bíl.
[img]http://img530.imageshack.us/img530/2779/280ge852jt7.jpg[/img]
[img]http://img530.imageshack.us/img530/4406/280ge853mh6.jpg[/img]
Ekki er mér kunnugt um hvort hann seldist. Allavega sá ég hann á götum borgarinnar ekki alls fyrir löngu.
[img]http://img530.imageshack.us/img530/3787/280ge851xf0.jpg[/img]
[img]http://img530.imageshack.us/img530/880/280ge854qu5.jpg[/img]
Hérna er 230GE jeppi sem Sveinn formaður festi nýlega kaup á og er hann búinn að taka jeppann í gegn og gera hann mjög huggulegan og ber í dag eiganda sínum fagurt vitni. En þessar myndir eru teknar s.l. vor, áður en hann komst í hendur Sveins.
[img]http://img112.imageshack.us/img112/420/dsc07878mj0.jpg[/img]
[img]http://img112.imageshack.us/img112/2674/dsc07879ux2.jpg[/img]
Þar sem ég hef all oft átt leið um Hjarðarhagann í Vesturbæ Reykjavíkur. Hefur þessi oft orðið á vegi mínum þar um slóðir. Í vor lét ég til leiðast og smella af honum myndum. Það var ekki seinna vænna, því nokkrum vikum síðar var þessi 200GE kominn á sölu til þess að geta vikið fyrir nýrri og öflugri G-wagen. Á sölunni var merkt á sölutilkynninguna í glugganum á 200GE; "Kanslarinn". En þá var "Kanslarinn" ekki ekinn nema 157.xxx km.!
[img]http://img62.imageshack.us/img62/2858/2 ... sekcm5.jpg[/img]
[img]http://img62.imageshack.us/img62/650/dsc07881dx0.jpg[/img]
Þessi 38" breytti G-wagen er í eigu "Kubbs" hérna á spjallinu. Sá þennan upp á höfða í fyrra og var náttúrlega að taka myndir af honum. Man ekki hvort hann sé 280GE eða 300GE, "Kubbur" getur kanski frætt okkur um það?
[img]http://img237.imageshack.us/img237/9743/dsc07836jf7.jpg[/img]
[img]http://img80.imageshack.us/img80/3323/dsc07835fl8.jpg[/img]
[img]http://img80.imageshack.us/img80/2474/dsc07837yl4.jpg[/img]
Þessi snaggarlegi 230GE breyttur fyrir 38" er í eigu Ágústs þjónustustjóra hjá Öskju. Þessar myndir tók ég í Skútahrauni fyrir utan þjónustuverkstæði Öskju-atvinnubíla í Hafnarfirði fyrir tveimur vikum. Held ég hafi heyrt einhversstaðar að Ágúst sé annar eigndi að þessum bíl.
[img]http://img218.imageshack.us/img218/5199/230ge38qx9.jpg[/img]
[img]http://img218.imageshack.us/img218/8356/230gejz4.jpg[/img]

Meira síðar.............[img]http://jsl210.com/spjall/images/smiles/006.gif[/img]


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#2
Frábært framtak, ég bíð spenntur eftir framhaldinu og er að sjálfsögðu spenntur fyrir því hvort mitt eintak dúkki upp á mynd

#3
Einsi skrifaði:Frábært framtak, ég bíð spenntur eftir framhaldinu og er að sjálfsögðu spenntur fyrir því hvort mitt eintak dúkki upp á mynd
er ekki um að gera að vera fyrri til að skella inn mynd af gæðingnum :) JBV bætir svo bara við :wink:

en glæsilegt JBV hlakka til að sjá restina
SE

Jeremy Clarkson skrifaði:It's pouring down with rain because not enough people have Range Rovers.

#5
SE skrifaði:
Einsi skrifaði:Frábært framtak, ég bíð spenntur eftir framhaldinu og er að sjálfsögðu spenntur fyrir því hvort mitt eintak dúkki upp á mynd
er ekki um að gera að vera fyrri til að skella inn mynd af gæðingnum :) JBV bætir svo bara við :wink:

Nja, ég er að fara með hann í meiriháttar aðgerð og hafði hugsað mér að skella inn myndum á eftir.

#6
Það er einmitt gaman að sjá myndir bæði fyrir og eftir. Því skaltu ekki hika við að skella mynd af jeppanum þínum hérna inn Einsi. :wink: Held nefninlega að ég eigi ekki mynd af honum. :(
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#8
Vegna mikils hópþrýstings með e-mail-um, pm, sms-um, símhringingum og fyrirsát. Verð ég að láta undan og koma með næstu G-wagen myndaseríu. :mrgreen:

Þetta er fyrsti G-wagen jeppinn (ef mér skjátlast ekki?)sem fluttur var til landsins og var alla tíð í eigu Geirs Þorsteinssonar f.v. forstjóra Ræsis þar til hann lést. Ekkja Geirs færði Ræsi bílinn að gjöf. Þetta er 300GD ekki er mér kunnugt um árgerðina, en fróðir menn segja mér að þessi bíll sé orðinn verulega illa farinn af ryði og sennilega of kostnaðarsamt að koma honum í upprunalegt horf. Sem verður að teljast miður þar sem þessi jeppi hefur klárlega mikið sögulegt gildi. Vonandi sjá stjórnendur Ræsis ehf, sér fært að koma þessum aldna höfðingja til vegs og virðingar að nýju með alsherjar úrbótum.
[img]http://img217.imageshack.us/img217/9354/dsc07896iq0.jpg[/img]
Þessi 300GE stendur gjarnan í Ingólfsstrætinu og er ávalt vel hirtur af eiganda sínum og sést sjaldan foraður. Eitt atriði stingur þó í augun við þennan jeppa, er hversu siginn hann er að aftan. Það er örugglega eitthvað sem hægt er að kippa í liðinn með litlum tilkostnaði.
[img]http://img217.imageshack.us/img217/3480/dsc07874to6.jpg[/img]
[img]http://img217.imageshack.us/img217/9762/dsc07875yp4.jpg[/img]
Þessi 300GE stóð nokkuð lengi ýmist númerslaus eða á einkanúmerinu "Garðar" við Hávallagötuna. Hef grun um að þessi hafi verið settur í slátur, svo illa var hann farinn af ryði þegar þessi mynd var tekin fyrir tveimur árum.
[img]http://img217.imageshack.us/img217/6426/dsc02859ga6.jpg[/img]
Þessi 38" breytti stóð einnig við Hávallagötuna og gerir líklegast enn. Orðinn nokkuð illa farinn af ryði þegar ég tók þessa mynd fyrir ári síðan.
[img]http://img217.imageshack.us/img217/4871/dsc07870ji9.jpg[/img]
[img]http://img217.imageshack.us/img217/9741/dsc07871yl0.jpg[/img]
Ekki veit ég til þess að mikið sé til af þessum 290GD turbo hér á landi, en örugglega þó einhverjir. Rakst á þennan á bílasölu fyrir skemmstu.
[img]http://img217.imageshack.us/img217/3427 ... rboqs0.jpg[/img]
[img]http://img217.imageshack.us/img217/4756/290gdtna9.jpg[/img]

Meira síðar................ :salut:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#9
Þetta verður bara skemmtilegra með hverri innlagðri mynd. Ég prufukeyrði þennan 290 bíl einu sinni fyrir nokkrum árum og hann var alveg einstaklega vel með farinn.

#10
Þetta er frábært framtak! Meira af þessu. :hylling:
Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?