"Hvernig gera má ljótan bíl ennþá ljótari"

#1
Finnur Thorlacius blaðamaður visir.is fer ekki í launkofa með álit sitt á G-wagen í þessari frétt.
Dæmi:
,,Útlitið gæti valdið augnskaða og ráðlegt að horfa ekki of lengi" http://visir.is/hvernig-gera-ma-ljotan- ... 3130309386" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er ekki ofsögum sagt að annað hvort finnst mönnum G-wagen fallegur eða forljótur - og ekkert þar á milli. :lol:


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: "Hvernig gera má ljótan bíl ennþá ljótari"

#2
Mér finnst að Finnur eigi að biðjast formlega afsökunar á þessum skrifum sínum. Það er ekki boðlegt að blaðamenn alhæfi um útlit útfrá þeirra eigin smekk sem vissulega þarf ekki endilega að endurspegla skoðanir annara.

Ég er til að mynda ekki þeirrar skoðunar að Geländewagen sé ljótur bíll og þessi er ekki forljótur eins Finnur vill meina. Hvernig datt manninum í hug að alhæfa þetta svona til að gera í raun bara sjálfan sig að fífli opinberlega í augum fjölda manns.?
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)