Skipt um perur í rofum - orginal leiðin

#1
Kvöldið kæru Benzar

Ákvað loks að einhenda mér í að koma ljósum í rofana á G-Benz, svona fyrst það er farið að rökkva. Það er til talsvert af DIY fyrir þetta verkefni á netinu þar sem settar eru díóður og viðnám í stað ljósaperanna sem lóðaðar eru í orginal rofana. Eins og hér og hér.

Eftir nokkra íhugun og heimsókn í Miðbæjarradíó og Íhluti ákvað ég að nota frekar venjulegar perur. Mér gekk illa að finna díóður sem lýsa ekki beint fram eða dreifa ljósinu. Vissulega eru til "mattar" díóður en mér fannst þær koma verr út heldur en þær sem lýsa beint áfram. Og svona persónulega þá kýs ég að halda sem mest í "orginalinn" á mínum bíl þegar kemur að útliti. Perur fyrir bílrofa eru til bæði hjá Miðbæjarradíó og Íhlutum. Þær sem ég ákvað að nota fékk ég hjá Íhlutum og eru nánast jafn stórar og orginal perurnar. Þær er ætlaðar í bílrofa og þola því vel spennu upp að 14V og kosta 200 kr. stykkið að mig minnir. Plús að þetta er auðveldara, færri lóðningar og ekkert þarf að spá í að hafa viðnámið réttu megin eða koma því fyrir inn í rofanum. Svo var bara að hefjast handa og rífa miðstokkinn úr (leiðbeiningar hér ef einhver er í vafa).

[img]https://lh3.googleusercontent.com/-US2V ... 250006.JPG[/img]

Hérna er búið að taka í sundur einn rofa. Húsið utan um hann efst til vinstri, peru-húsið þar við hliðina og svo innvolsið til hægri. Fyrir neðan húsið er lítil fjöður sem peran situr á í húsinu. Ég þurfti aðeins og breyta henni til að nýju perurnar sætu vel þar sem þær eru örlítið minni en orginal peran. Neðst á myndinni eru svo orginal peran tengd við snerturnar í rofanum. Snerturnar fyrir peruna eru númeraðar 7 og 8 bæði á húsinu og á innvolsinu. Á myndina vantar spennur, groma og kúlur sem talað er um hér fyrir neðan.

[img]https://lh6.googleusercontent.com/-JHGj ... 250007.JPG[/img]

Hér er búið að klippa gömlu peruna af og lóða þessa nýju á. Vírarnir sem standa úr nýju perunni eru ekki nógu langir til að ná alla leið niður í snertuna þannig að gamli vírinn er endurnýttur. Lóðaði einnig vírinn við snertuna svona til að vera alveg "safe".

[img]https://lh4.googleusercontent.com/-2oHK ... 260008.JPG[/img]

Hér er svo vinnuaðstaðan. Tók eina og hálfa kvöldstund í þetta, samtals 8 rofar. Á myndina vantar flöskubjór :-).

[img]https://lh6.googleusercontent.com/-1qTx ... 280011.JPG[/img]

Hér er svo afraksturinn. Í stokknum eru bæði venjulegar stunguperur (12V/1,2W) og nýju rofa perurnar. Ég er mjög sáttur með þetta þó að stunguperurnar séu vissulega aðeins skærari. En ég held að ljósin í þessum rofum hafi aldrei verið nema rétta til þess að þetta sjáist eftir myrkur.

Hérna eru svo nokkrir punkar fyrir áhugasama.

1. Passa mjög vel upp á kúlur og gorma þegar rofinn er tekin í sundur. Þetta flýgur hálfa leið til tunglsins ef ekkert stoppar.
2. Fyrsti rofinn er alltaf erfiðastur.
3. Nokkuð slungið er að setja rofann saman aftur. Ég klippti í sundur eyrnapinna (sem sjást á vinnuborðinu) til að halda inni gormunum og kúlunum þegar rofahúsinu er mjakað yfir innvolsið. Það er gert ráð fyrir einhverskonar þannig verkfæri með gati á rofahúsinu. Spennurnar sem eru ofan á og undir rofanum er hægt að setja á þegar húsið er komið vel áleiðis yfir innvolsið og alveg að fara smella.
4. Fínt að nota 9V rafhlöðu til að prófa perurnar eftir lóðningu og samsetningu.
5. Gott að þrífa alla fitu af perunum áður en þær fara í. Endast lengur segja vitrir menn.


Kveðjur
Ragnar Heiðar
Seinast breytt af RagnarHeidar þann 30 Ágú 2012, 15:45, breytt 1 sinni alls.


Ragnar Heiðar Þrastarson
Mercedes Benz 230GE - SELDUR

Re: Skipt um perur í rofum - orginal leiðin

#5
Takk kærlega fyrir þetta Ragnar! :tumbsup2:

Ég þarf einmitt að skipta um í nokkrum rofum hjá mér, en 6 þeirra er með bilaða peru.

Það fór hjá mér læsingarofi og ég keypti nýjan. Ég notaði tækifærið þegar ég var að skipta og reif þann gamla í sundur til að sjá hvernig rofinn væri samsettur. Lenti einmitt í smá föndri þegar ég var að setja hann saman aftur út af kúlunum, en endaði með að nota svipaða aðferð og þú nema ekki með eyrnapinna. Sá að sennilega hefði verið nóg að hreinsa hann upp.

Fannst eiginlega bara mesta vesenið að ná rofunum úr sætinu :roll:

Gott að hafa svona leiðbeiningar þegar maður ræðst í þetta... :)
Sveinn