Sælir G-Benzar
Ég hef aðeins verið að skoða hæðarstýringuna á aðalljósunum hjá mér (sem virkar ekki). Getur einhver frætt mig um það hvernig þetta virkar? Hvað keyrir þetta áfram? Og hvar er stýringin á þessu dóti staðsett? Er með eina skýringarmynd sem segir ekki mikið:
[img]https://lh3.googleusercontent.com/-hv7N ... tillir.gif[/img]
Kveðja
Ragnar Heiðar
Re: Hvernig virkar hæðarstýring á aðalljósum?
#2Þetta er lokað vökvakerfi án forðabúrs. Takkinn í mælaborðinu er höfuðdæla og síðan eru "þrælar" við ljósin. Myndin segir eiginlega allt, það er ekkert meira sem keyrir þetta áfram.
Garðar Lárusson
s. 892-0084
500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987
s. 892-0084
500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987
Re: Hvernig virkar hæðarstýring á aðalljósum?
#3Takk fyrir þetta Garðar, ég skoðaði þetta gaumgæfilega í gær og tók allt í sundur og komst að því að líklega væri þetta vökvi ... hjá mér er hins vegar allur vökvi á brott 
Ragnar Heiðar Þrastarson
Mercedes Benz 230GE - SELDUR
Mercedes Benz 230GE - SELDUR