Ágrip af Sögu Mercedes Gelanderwagen
Árið 1972 gerður Daimler-Benz AG í Stuttgart og Steyr-Daimler-Puch AG í Graz í Austurríki með sér samkomulag um að hanna og framleiða fjórhjóladrifs ökutæki sem væri gott að nota á vegi við hin daglegu störf og sem einnig væri óviðjafnanlegur utan vega. Tækið átti að henta til notkunar fyrir herþjónustu sem og til notkunar fyrir alla almenna borgara sem væru að leita að tæki til að flytja vörur og fólk hvort sem var á vegi eða utan hans. Aðilar að þessu samkomulagi voru sammála um að gera þetta tæki þannig úr garði að það toppaði öll þau tæki sem fyrir voru á markaðinum.
Endanlega ákvörðun um að framleiða Gelanderwagen var ekki tekin fyrr en haustið 1975.
Einn af hluthöfum Daimler-Benz AG á þessum var Sheikh Zayed, hann var gríðarlega áhugasamur um þessar hugmyndir og hvatti menn til að hefja framleiðslu á þessum bílum með því að heita að kaupa 20.000 eintök fyrir heri sína. Síðar kom í ljós að hann réði því ekki einn og eftir að framleiðsla hófst varð ekkert af þessari framleiðslu fyrir hann. En það voru fleiri búnir að sjá að þetta tæki gæti hentað þeim vel, pantanir bárust frá Þýsku lögreglunni, þeir pöntuðu 400 stykki, einnig barst pöntun frá Sviss hernum upp á 4000 stykki. Einni voru viðræður við Norska herinn og einnig her Argentínu. Eitthvað varð af pöntunum frá þeim en fjöldi upphaflegra pantana liggur ekki fyrir, þó er vitað að bæði Norski herinn og her Argentínu pöntuðu og fengu afhenta bíla strax 1979. Þar með var grunnurinn lagður að hagkvæmni þess að framleiða þennan bíl.
Bíllinn er hannaður og prófaður að mestu leyti í Stuttgart af verkfræðingum sem komu frá fyrirtækinu Hanomag Henschell sem Daimler-Benz hafði keypt nokkrum árum áður. Verkfræðingar sem voru að vinna hjá Steyr-Daimler-Puch AG í Graz sáu að öllu leiti um hönnun á yfirbyggingu, nýjum millikassa með samhröðunarhringjum, ásamt því að sjá um allar utanvega prófanir.
Strax í upphafi var ákveðið að hin nýi bíll skildi vera á gormafjöðrum allan hringinn, en ekki fjöðrum sem hafði verði mjög ráðandi í slíkum tækjum í gegn um tíðina, þessi ákvörðun reyndist góð og hefur bílinn verið vinsæll til akstur við erfiðar aðstæður frá fyrsta degi. Yfirbyggingin var hönnuð með það fyrir augum að útsýni væri eins gott og mögulegt væri og fjarlægð frá hásingum að aftan og framan væri sem minnst til að horn undir stuðara væri sem allra brattast.
Innréttingin var einföld í fyrstu og var nær einvörðungu hugsað um notagildi og öryggi. Rofar og stjórntæki í hæfilegri fjarlægð frá ökumanni og margir hlutir innréttingar voru málaðir í sama lit og yfirbygging bílsins. Síðan var mælaborð klætt með gúmmí til að verja farþega fyrri hugsanlegum meiðslum.
Í fyrstu gætu viðskiptavinir valið um fjórar vélagerðir í fjórum mismunandi yfirbyggingum. Boðið var upp á langan og stuttan bíl, sem sagt fjögra hurða eða sex hurða(tvær hliðarhurðir og tvær afturhurðir), og síðan langan og stuttan bíl með tuskuþaki. Vélar sem í boði voru í upphafi eru sem hér segir:
230 G 4 sílendra bensínvél með blöndung sem skilaði 90/102 hestöflum. M115
280 GE 6 sílendra bensínvél sem skilaði 150 hestöflum. M110. (kom um mitt ár 1980)
240 D 4 sílendra díselvél sem skilaðir 72 hestöflum OM 616
300 D 5 sílendra díselvél sem skilaði 88 hestöflum. OM 617
Í fyrstu var eingöngu í boði 4 gíra beinskiptur gírkassi, en fljótlega(1981) var einnig í boði fyrir stærri bensín og díselvélarnar 4 gíra sjálfskipting.
Upphaflega voru driflæsingar í boði sem aukabúnaður, og þá einvörðungu á báðar hásingar í einu, sem sagt ekki var hægt að fá á afturhásingu einvörðungu. Frá upphafi og þangað til að W460 gerðin(1979-1991) var tekin úr framleiðslu, voru allar driflæsingar í þessum bílum drifnar af glussadælum. Stangir sem liggja beint niður frá stjórntækjum bílstjóra niður í gegn um gólf bílsins tengjast við tjakka sem dæla glussa eftir rörum að hásingum, þar sem aðrir tjakkar læsa drifinu.
Þessar læsingar hafa alltaf verið 100%.
Árið 1981 bættust síðan við tvær gerðir af yfirbyggingu, þá var hægt að fá langan og stuttan bíl sem sendibíl, þeir voru allir fjögra dyra. Og síðan þriggja dyra eftir að hætt var að hafa aftur hurðir tvær. Þá var einnig hægt að fá bílana í 22 mismunandi RAL litum, sem viðbót frá fyrstu fimm litunum.
Árið 1982 urðu allir bílar með heili afturhurð, með varadekki föstu á henni, áfram var þá hægt að fá tvær afturhurðir sem sérpöntun, einnig var hætt að bjóða upp á 4 sílendra bensín vél með blöndung og í staðin kom 4 sílendra bensínvél með beinni innsprautun. Einnig var hægt að fá þá loftkælingu. Einnig var þá hægt að panta sjúkrasæti, auka miðstöðvar (bensín eða olíu), þá var einnig hægt að fá bílana með „metalic“ málningu, síðan kom einnig uppfærsla sem staðalbúnaður á innréttingu, þar sem stýrið varð fjögra arma, ásamt því að hnappar fyrir ljós og miðstöð breyttust. Þá varð einnig í boði að kaupa brettaboga til að breikka dekk og álfelgur komu á markað sem voru sérhannaðar fyrir bílinn. Einnig var hægt að fá bekki aftast í bílinn fyrir tvo eða fjóra farþega, sitjandi á hlið.
Einnig keyptu Peugeot verksmiðjurnar ýmsa hluti frá Graz til að smíða sína eigin útgáfu af Gelander, sem heitir Peugeot P4, en er nánast eins og orginalinn.
1982 Komu tvær nýjar vélar;
200 GE 4 sílendra bein innspýting sem skilaði 113 hestöflum. M102.965 (eingöngu fyrir Ítalíu markað)
230GE 4 sílendra bein innspýting sem skilaði 125 hestöflum. M102
Árið 1983 var hægt að fá 4 sílendra vélina, 230 GE, með 4 gíra sjálfskiptingu. Þá var einnig hægt að fá 5 gíra beinskiptingu sem aukabúnað. Aldrei var þó hægt að fá 240 GD með 5 gíra beinskiptingu.
1984 Vann Mercedes Benz 280 GE Paris-Dakar rallið í fyrsta sinn.
1985 var snúningshraðamælir staðalbúnaður, ásamt samlæsingum og driflæsingarnar urðu staðalbúnaður. Þá var einnig búið að hanna betrumbættari útgáfu af blæjum sem hentuðu betur fyrir hin almenna notanda, ekki eingöngu strigatopp sem hafði verið hugsaður fyrir herbíla í upphafi.
1987 komu allir bílar sem smíðaðir voru fyrir almennan markað með rafmagnsrúðum fyrir framhurðir. Einnig bættist við ein ný útgáfa í yfirbyggingarflóruna og þá var hægt að fá bílinn sem grindarbíl með ökumannshúsi, til yfirbyggingar. Drög voru lögð þetta ár af því að smíða W463 bílinn sem átti að verða flottari útgáfa af Gelander.
250 GD 5 sílendra kemur árið 1987 sem skilaði 84 hestöflum. OM602
Þessi nýja díselvél kom alltaf með 5 gíra kassa ef óskað var eftir beinskiptingu.
Síðan 1988 varð staðalbúnaður að á framsætum komu allir bílar með armpúða fyrir ökumann og farþega.
Árið 1989 voru smíðaðir 300 bílar sem fengu það skemmtilega nafni 230 GE Classic til að fagna 10 ára smíðaafmæli þessa bíls.
W 463
Á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt í september 1989 var nýja gerð Gelander kynnt, þá fengu menn fyrst að sjá hin nýja W463, þá kom nýr minnikassi sem virkaði þannig að bílinn er alltaf með drifið á öllum hjólum, en hægt að læsa honum. Einnig voru hannaðir á bilin nýir fram og aftur stuðarar, grill og ljós endurhönnuð, ásamt því að innrétting var algjörlega endurhönnuð. Allir bílar með gerðarheitið W463 eru með ABS bremsubúnað. Leður klæðning á sætum var valmöguleiki.
Í apríl 1990 hófst forlega framleiðsla á W463 í eftirfarandi útgáfum:
200 GE, 4 sílendra, bein innspýting sem skilaði 113 hestöflum. M102.965 (sem fyrr, Ítalíu markaður)
Að sjálfsögðu eru helstu fyrirmenni heimsins með Gelander í sinni þjónustu
230 GE, 4 sílendra með bein innspýting sem skilaði 125 hestöflum. M102
300 GE, 6 sílendra vél, bein innspýting sem skilaði 170 hestöflum. M104
250 GD, 5 sílendra sem skilaði 84 hestöflum. OM 602, ekki fáanlegur sjálfskiptur.
300 GD, 6 sílendra sem skilaði 113 hestöflum. OM 603
Framleiðslu á W460 hætt á haustmánuðum 1991. Smíðuð eintök voru rétt rúmlega 50.000.
Árið 1992 er farið að setja saman Gelander í Grikklandi, þá voru allri partar sendir frá Graz og síðan sett saman þar. Ekki höfum við miklar upplýsingar um vélbúnað eða annað í sambandi við þessa framleiðslu annað en það að bílar sem settir voru saman í Grikklandi fengu gerðarheitið W462.
Um leið og framleiðslu var hætt á W460, fóru menn samhliða því að framleiða W463 fyrir almennan markað, að framleiða W461 fyrir heri, lögregluna eða aðra atvinnustarfsemi.
1992 var 5 sílendra díselvélin stækkuð úr 2497cc í 2874cc, og hestöfl fóru í 97.
Með tilkomu nýhannaðra innréttinga og uppfærðs útlits þessa bíls varð til ný hópur af kaupendum, og jukust vinsældir þessa bíls enn frekar. Með þessum uppfærslum varð til bíll með einstaka utanvega eiginlekar ásamt því að hafa öll þau þægindi sem menn höfðu vanist hjá Mercedes Benz í gegn um tíðina. Ekki voru driflæsingar valmöguleiki heldur orðin staðalbúnaður, þær voru hins vegar orðnar rafstýrðar, þrír hnappar í mælaborði komu í stað stanga upp úr gólfi, tveir fyrir læsingar á hvorri hásingu og einn fyrir læsingu á millikassa.
Árið 1992 kom fyrsta uppfærsla á búnaði í nýja W463 bílum, þá var hægt að fá hraðastilli, hlíf yfir varadekk úr riðfríu stáli, viðarklæðning í mælaborð varð valmöguleiki, stigbretti.
Einnig kom ný vél í fyrsta sinn árið 1992, það var fyrsta turbo díselvél sem boðin var í Gelander.
350 GD TURBO DIESEL, 6 sílendra sem skilaði 136 hestöflum. OM 603
Þessi bílar með þessari nýju aflmiklu díselvél voru eingöngu fáanlegir með sjálfskiptingu.
1993 var fyrsta árið þar sem 8 sílendra bensínvélar voru settar í Gelander. Þá voru framleidd 500 eintök af þessum einstaka bíl sem átti eftir að marka tímamót í vinsældum þessara bíla. Allir 500 bílarnir voru seldi áður en framleiðsla á þeim hófst, og þegar menn gengu frá kaupum á þeim fengu menn fallegan veggplatta og bindisnælu með í kaupunum. Þessir bílar bílar voru allir langir, allir komi þeir með loftkælingu, rafmagni í öllum rúðum, topplúgu, leður sætum, og allir voru þeir sjálfskiptir. Einnig eru þetta einu W463 bílarnir sem voru eingöngu með driflæsingu á millikassa og afturhásingu. Og rúsínan í pylsuendanum; Þeir eru allir dökk bláir(amethyst blue). Þetta átti eftir að verða eini V8 Gelander sem framleiddur var þangað til 1999.
Árið 1994 var skipt um stærri bensínvélina, gamla 300 GE línuvélin var tekin úr og inn í línuna var sett ný fjölventla 3199cc vél. þar með var 200 hestafla múrinn rofin í hefðbundni framleiðslu.
G 320 6 sílendra vél með 4 ventlum á hvern sílender, 210 hestöfl. M11
Þá var einnig ákveðið að skipta um heiti á öllum bílunum, til samræmis við aðra framleiðslulínu hjá Mercedes Benz, og færðist þá bókstafurinn G framan við tegundarheiti, sem sagt 300 GE, hét þá G300 eftir breytingu.
1995 koma allir W463 bílar með fjarstýrðum samlæsingum með þjófavörn. Þetta sama ár er einnig kynntur til sögunar stuttur blægjubíll með rafmagnsblægjum.
Árið 1995 var einnig búið að setja túrbínur á 300 díselvélarnar.
G 300 TURBO DIESEL 6 sílendra sem skilaði 177 hestöflum.
Með þessari nýju breytingu á 300 díselvélinni kom líka í fyrsta sinn 5 þrepa sjálfskipting. Þessi sjálfskipting var einnig sett í alla 6 sílendra bíla eftir þennan dag.
1997 var hætt að selja bílana með G320 línuvélini, en í staðin kom V6 G320.
1998 bættist í flóru vélamöguleika að fá bílinn með V8 vél í fyrsta sinn, í almennri framleiðslu.
G 500 V8 296 Hestöfl.
Í mars 1999 voru framleidd 400 eintök af G 500 Classic í tilefni af 20 ára afmæli Gelander. Þá er einnig farið að hafa fjölstillanlegt stýri sem staðalbúnað í W463. G55 AMG bíllinn er kynntur í fyrsta sinn. Einnig var farið að bjóða upp á G 500 bílinn í skotheldri útgáfu.
G 500 V8 354 hestöfl.
Á bílasýningunni í París árið 2001 var bíllinn sýndur með enn uppfærðri innréttingu sem gjörsamlega gerði allt vitlaust, þá í fyrsta sinn var ákveðið að halda á USA markað með bílinn. Allir bílar sem fóru á USA markað voru með álfelgum, og allit bíla með samlita stuðara og krómað grill.
Haustið 2001 kom ESP kerfi í alla bíla með V8 vél. Einnig var kynnt til sögunar fyrsta V8 díselvélin.
G 400 CDI V8, 250 hestöfl.
2002 var kynnt til sögunar ný 5 sílendra díselvél sem skilaði 156 hestöflum.
G 270 CDI L5, 156 hestöfl.
Á 25 ára afmælinu 2004 var kynntur á bílasýningunni í Genf G55 með túrbínu, einnig koma allir bílar með stefnuljósi í speglum. G55 var þó eingöngu í boði sem langur bíll, 5 dyra.
G 55 AMG V8 TURBO, 476 hestöfl.
Strákarnir hjá AMG hafa alltaf þurft að æfa sig í bílabreytingum þannig að þeir hafa útbúið V12 bíl fyrir þá sem ekki dugar að hafa V8 476 hestöflin.
G 63 AMG v 12 BI-TURBO, einhver ræfilsleg 700 hestöfl.
W 461
Samhliða því að smíði var lögð niður á W460 hófst smíði á tvíburabróður hans, sem er nánast að öllu leyti. Nema hvað að eingöngu var boðið upp á eina bensín vél og eina díselvél. Ekki var hægt að fá hann stuttan, heldur eingöngu langan, sem lokaðan sendibíl eða farþegabíl. þó var hægt að fá skúffubíl í stuttan tíma, ásamt því að hægt var að panta bíla með tuskuþaki til herþjónustu.
290 GD 5 sílendra díselvél, sem skilaði 95hestöflum
230 GE 4 sílendra bensínvél sem skilaði 125 hestöflum.
Árið 1997 var síðan hætt að framleiða skúffubílinn, en þá var sett túrbína á 290 díselvélina og bætti það afköst talsvert. Einnig var þá hægt að fá takmarkað magn af aukabúnaði svo sem loftkælingu, loftpúða fyrir ökumann, ásamt rafmagns rúðuvindun. Sem staðalbúnaður í 290 GD með túrbínu var sjálfskiptin, snúningshraðamælir og stærri rafali.
Ef menn vildu fá meiri búnað var þeim einfaldlega bent á að kaupa W463.
Mynd af Puch W461 frá Austuríska hernum. Mynd af W460 frá Kanadíska hernum.
W460 og W461 eru nú í notkun hjá 63 herjum viða um heim. Ásamt því að lögregluyfirvöld nota þá einnig víða.
Nú er svo komið að menn eru komnir í hring og framleiðsla hefur aftur hafist á W460 til að mæta þeim óskum manna um að fá einföld og sterk ökutæki til fjölnota. Ekki þarf að hafa mörg orð um að þessir bíla hafa svo sannarlega staðist tímans tönn, svo um munar. þegar þetta er skrifað eru 32 ár síðan framleiðsla hófst og eru menn en að. Búið er að framleiða yfir 200.000 bíla af öllum gerðum í gegn um tíðina, þá að allt of fáir hafa ratað til Íslands, en þeir sem hingað hafa komið eru flestir enn ofan jarðar og hlýtur það að vera met.
Upplýsinga víða af veraldarvefnum.
Gunnar Örn Hjartarson.
Upprunalegt skjal er með fullt af myndum, ég nenni bara ekki að vista þær allar og tengja við þetta skjal.
Ágrip af sögu Gelanderwagen
#1Seinast breytt af Gunnar Örn þann 06 Maí 2013, 16:45, breytt 1 sinni alls.
w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965
w111 220 SEb/C 1965