Komiði sælir.
Ég er W463 300GD og langar að setja hitamæli á skiptinguna. Vitiði hvort það er eithver heppilegur tappi eithverstaðar á þessum skiptingum til að koma fyrir mæli?
Takk
Kv Atli
Re: Hitamælir á sjálfskiptingu
#2Ég hef ekkert svar við þessu en það væri gaman ef þú gætir deilt með okkur svarinu þegar það er komið, - ég þarf einmitt að gera hið sama.
Re: Hitamælir á sjálfskiptingu
#380 Cruiser á við sama vandamálið að stríða sjálfskiptingin ofhitnar !
Re: Hitamælir á sjálfskiptingu
#4Ég þekki reindar ekki hvort þessar skiptingar séu eithvað að ofhitna og hef heldur ekki vitað til þess að skiptingarnar í 80 Cruiser séu að hitna mikið, mig langar bara að hafa augun hjá mér.
Re: Hitamælir á sjálfskiptingu
#5Ég hef svo sem ekkert orðið var við að skiptingin hjá mér sé að ofhitna en vil, líkt og Atli hafa augun hjá mér. Ég hreinlega gef mér að skiptingin hitni en aðallega er það vélin sem hitnar hjá mér. Í alvöru snjókeyrslu er ég yfirleitt kominn með miðstðina í botn og keyri svo eftir hitamælinum en ekki hraðamælinum.
Re: Hitamælir á sjálfskiptingu
#6Kvöldið, ég vildi bara benda á að í t.d. breyttum Ford Econoline hefur hitaneminn verið settur í pönnuma á skiptingunni og gefist vel. Þetta krefst að vísu þess að taka pönnuna undan og bora í hana gat og punkta ró á hana innanverða með sömu gengjum og hitaneminn. Einungis þarf að gæta þess að nóg pláss sé fyrir neman þ.e. skrúfist ekki í innviði skiptingarinnar s.s. ventlaboddý, spólur ogsovidere og að neminn sé í vari fyrir fósturjörðinni. Lítið mál ef rafsuða/koparbrasari er við hendina, rær með réttum gengjum má fa í Barka, Landvélum t.d. ef þörf er á.
Kosturinn við þessa staðsetningu er að mælirinn sýnir marktækt hitastig á skiptingunni og er ekki á sífelldu flandri upp og niður eins og gerist ef hann er tengdur með Té-tengi á lögnina frá skiptingu að kæli. Það er að vísu bolt-on uppsetning og gefur vísbendingu um hita á skiptingunni en eins og fyr segir þá er mælirinn á sífelldu flakki þegar farið er að beita bílnum t.d. í ófærð.
Kv, Geir.