Re: Smá vandræði

#11
Þegar ég átti bílinn man ég að gluggastykkið kostaði 50 þúsund í Ræsir,það er örugglega á svívirðisgjaldi í dag.Ef þú ætlar að fara út í að gera upp gluggastykkið, þá held ég að best sé að taka það úr til að laga það.Svo er kannski smuga að fá það notað einhversstaðar.


Eyjólfur Karlsson
--------------------------------------
Mercedes Benz 250S 1968 R42095
Mercedes Benz 290GDT 1985 R16377

Re: Smá vandræði

#12
Ég hringdi í Öskju og gluggastykkið í kringum framrúðuna kostar tæp 130 þús., læt vera að kaupa það í bili að minnsta kosti.

Aðalvélin er komin úr og til Reykjavíkur, endar sjálfsagt í bílnum hans Gunnars. Ég tók með mér 6 cyl. vél norður í staðin með hárþurrku sem var í nærbuxnabláum G-vagni þar til fyrir stuttu.

Læt fylgja með nokkrar myndir til gamans sem voru teknar fyrir helgi þegar mótorinn fór úr. Merkilega létt og gott að ýta bílnum þegar mótorinn og afturbekkurinn eru komnir úr. Ætla láta öðrum eftir að dæma um það hvort þróunin er til hins betra......

[img]http://images51.fotki.com/v423/photos/3 ... all-vi.jpg[/img]

[img]http://images41.fotki.com/v195/photos/3 ... all-vi.jpg[/img]

[img]http://images41.fotki.com/v209/photos/3 ... all-vi.jpg[/img]

[img]http://images17.fotki.com/v374/photos/3 ... all-vi.jpg[/img]
Gustavsson

Mercedes 280 GE XL

Re: Smá vandræði

#13
"Ég hringdi í Öskju og gluggastykkið í kringum framrúðuna kostar tæp 130 þús., læt vera að kaupa það í bili að minnsta kosti."

Það er nú bara eins og þeir ágætu Öskju-menn séu markvisst að vinna í því að koma eldri MB-um úr umferð, skipti um öxulhosur að framan í 124-4matic um daginn, í stuttu máli voru þær ekki keyptar í Öskju þó til væru, er búin að gleyma hvað þær kostuðu (viljandi) og notaði Universal......og skammast mín ekki fyrir það. :wink:
úpps, on-topic, það er gaman að sjá til manna sem ekki fyllast verkkvíða þó að útvarpið bili :D Enn einum bjargað og er það vel,
Kv, Geir.

Re: Smá vandræði

#15
Jú það passar, þessi blái er RR (breska heimsveldið holdi klætt) sem er í eigu félaga míns. Ef ég man rétt þá er hann níutíu og eitthvað módelið með 3,9 beinskiptur á 38". Svo er annar félagi minn hér í bæ á glæsilegum 85´bíl sem er líka á 38", rauðbrúnn en sá er sundurtættur og eins og er - á leið í sprautun.
Gustavsson

Mercedes 280 GE XL