Menn almennt hætttir að tjá sig?

#1
Góðir hálsar

Það er svo mikið logn á þessum þræði að mér er farið að leiðast. Datt í hug að spyrjast fyrir um eitt atriði sem hefur reyndar komið up hér áður. Það varðar síuna í olíutankinum. Ég er búinn að vera með hálflekt olíkerfi í svakalega langan tíma. Núna þegar búið er að komast fyrir alla leka og skipta um allt í olíuverk, allar síur og svo framvegis, hefur það haft tvennt í för með sér. Í fyrsta lagi eyðir bíllinn minna og í annað stað byrjar hann að hökta undir áreynslu og í rúmlega 3000 snúningum. Þið sem eruð sérfræðingarnir, hvað getur þetta verið? - Er möguleiki á því að sían í tankinum sé að hrekkja mig? Ég held að það hafi aldrei verið skipt um hana og ég var einmitt að ljúka við að tilkeyra bílinn, hann er kominn í 350 þúsundin. Látið mig endilega heyra einhverja góða speki um þetta?


cron