Síða 13 af 18
Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 03 Jún 2011, 00:01
frá Gunnar Örn
Þröstur skrifaði:sveinn skrifaði:eyjok skrifaði:Var að muna það að líkbíllinn á Eskifirði er 280G og er sennilega lengdur af sama aðila og gamli sjúkrabíllinn frá Slökkviliði Akureyrar.
Var þessi langi fyrir austan líkbíll??
...hélt að þetta hefði verið einhverskonar björgunarsveita- sjúkra-bíll
Ég hélt það líka.
Eitt get ég þó fullyrt varðandi líkbilinn, hann er búin að vera í því að flytja fólk síðasta spölinn í að minsta kosti 15 ár, og var tekin í gegn í fyrra eða hittifyrra og málaður aftur, er víst eins og nýr.
Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 03 Jún 2011, 17:31
frá eyjok
Það er gott að búið sé að taka líkbílinn í gegn, síðast þegar ég sá hann var hann orðinn svolítið þreyttur.Ég er nú nokkuð viss um að það séu ekki margir kílómetrarnir á mælinum svo hann ætti að duga vel eftir gegnumtekt.
Hinsvegar veit ég að Akureyringarnir voru ánægðir með G sjúkrabílinn sinn og þetta var eini nothæfi bíllinn í ófærð og slæmu veðri, ekki síst þegar þeir fóru út fyrir bæinn.
Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 01 Júl 2011, 19:46
frá sveinn
Gunni rafvirki sendi mér þessa mynd af líkbílnum um daginn:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/Gelande ... ikbill.jpg[/img]
Er þetta ekki örugglega 280GE. Veit eihvern hvaða árgerð hann er?
Voldugur líkbíll!!

Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 01 Júl 2011, 20:16
frá sveinn
UA-418 varð fyrir tjóni í vor-hretinu í byrjun maí og valt:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/Gelande ... 18tjon.jpg[/img]
Munaði litlu að ég keypti þennan bíl...
Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 01 Júl 2011, 20:45
frá BaraBenz
Ég held að Sævar partasali og sonur hafi keypt þennan.
Verst að þú keyptir hann ekki.

Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 01 Júl 2011, 21:28
frá sveinn
BaraBenz skrifaði:Verst að þú keyptir hann ekki.

Pínu feginn, svona eftir á að hyggja...

Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 01 Júl 2011, 21:45
frá sveinn
Þessi bíll þarf eiginlega að fylgja með hér, því að hann er eini W461 bíllinn á landinu mér vitanlega (sem eru nú ekki óyggjandi vísindi

). Þessir bílar eru líka svo nauða-líkir W460.
Bíllinn er 1993 árgerð af 290GD
[img]
http://i114.photobucket.com/albums/n246 ... G_3994.jpg[/img]
Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 02 Júl 2011, 15:50
frá sveinn
Fann þessa mynd á flakkaranum mínum:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/Gelander/460/Gl21.jpg[/img]
Er þetta ekki sami bíll og á frímerkinu frá Gunna...

:
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/g/gl21.jpg[/img]
Re: Myndir af W460 Gelander
Innsent: 09 Júl 2011, 20:48
frá sveinn
Ég var allt í einu að átta mig á því að einn bíllinn hér er tvítekinn...
Hann hafði bara tekið eitthvað svo miklum stakkaskiptum (þá sértaklega í lit og innréttingu) að ég áttaði mig ekki á að um sama bíl væri að ræða
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/g/gl02.jpg[/img]
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/Gelander/460/ne569.jpg[/img]
Garðar, var þessi bíll ekki í þinnu eigu einhverntíman. A.m.k. fannst mér eins og fyrri myndin væri tekin á Hávallagötunni...

Re: Myndir af W460/W461 Gelander
Innsent: 10 Júl 2011, 22:07
frá msditlevsen
Tók mer til og fekk breytingar og aðal skoðun á billin.
Fór svó straks til Snæfellnes til að profa billin i utilegu. Held óþarf að nefna að þetta er besta ferðafelagi man getu hafa!
[img]
http://a2.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos- ... 7898_n.jpg[/img]