300GD R1623 fær yfirhalningu.

#1
Þessi þráður er hugsaður til að leyfa mönnum að fylgjast með mínu nýasta verkefni sem er Mercedes Benz af árgerð 1980.
Fróðir menn halda því fram að þessi bíll sé fyrsti bíll sinnar tegundar hér á landi. Hann hefur verið í eigu sömu fjölskyldu svo að segja frá upphafi.
Hér eru myndir af byrjunarskerfum í uppgerðini og reyni ég að setja inn myndir eins og málin þróast.
Ef einhver lumar á sögu tengdri þessum bíl gömlum myndum af honum eða einhverjum fróðleik eða hlutum í þessa bíla þá er um að gera að láta ljós sitt skína.

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 0_full.jpg[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 9_full.jpg[/img]

Hvað finnst mönnum um litinn á þessum bíl á að halda honum svona gulum eða setja á hann annan lit?
Seinast breytt af Gunnar Örn þann 19 Apr 2011, 14:35, breytt 3 sinnum alls.


w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965

#2
Það er náttúrulega bara smekksatriði með litinn en það væri mjög gaman að fá að fylgjast með uppgerðinni hér á vefnum.

#3
Gangi þér vel með þennan. Væri gaman að fá að fylgjast með. Sammála Einsa með litinn hann er smekks atriði.

Kv Halli H.
Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?

#4
Gangi þér vel, þetta er verðugt verkefni að bjarga svona höfðingja 8)

Persónulega myndi ég sprauta hann í öðrum lit en það er bara mín skoðun.
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

#5
Frábært að þessum sögulega bíl skuli vera bjargað. :) Það verður gaman að fylgjast með þessu verkefni hjá þér Gunnar. Gangi þér sem allra best við þetta project.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#8
Ztebbsterinn skrifaði:Gaman af þessu, leifðu okkur endilega að fylgjast með yfirhalningunni :)

Taka nóg af myndum :wink:


x2

#10
Ég er alveg sérlega ánægður með að þessi bíll skyldi hafa lent í þínum höndum. Var farinn að hafa töluverðar áhyggjur af honum þarna hjá Ræsi, en þar beið hans ekkart annað en að drabbast niður. Ég óska þér bara innilega til hamingju með kaupin, og hakka til að sjá þennan bíl hafðan aftur til vegs og virðinar hjá þér! :)

Bíllinn var í eigu föðurbróður míns alla tíð þar til Ræsir eignaðist hann, og man ég vel þegar Geir eignaðist hann hvað hann þótti glæsilegur: Benz jeppi, það þótti eitthvað alveg nýtt. Geir lét síðustu ár alltaf lappa aðeins upp á hann einu sinni á ári (svona útlitslega séð). Engar stórviðgerðir þar á ferð og bara blettað í og svona, enda bíllin notaður og ekkert hlíft. Leit alltaf ágætlega út, en var orðinn ansi ljótur þarna í lokin fyrir utan Ræsi. Varðandi litinn, þá verð ég nú að viðurkenna að þetta er ekki fallegasti litur sem maður hefur séð á þessum bílum, en hann var samt svona og líka með þessum röndum og það er alltaf gaman að hafa bíla upprunalega. Það yrðu samt engin helgispjöll að breyta um lit og ég skil vel þessar hugleiðingar :wink:

Það er eitt sem ég man eftir í sambandi við þennan bíl, en Geir var alltaf með koll í honum til að svona heldra fólk gæti sest inn í bílinn án sérstakra erfiðleika. Þegar ég keypti minn Gelander, þá kvartaði mamma einmitt sárlega yfir því að ég þyrfti koll eins og Geir hafði haft í sínum bíl, en bíllinn er helst til hár fyrir þessa kynslóð sem komin er á þann aldur að það á erfitt með að príla upp í svona bíla :wink: :lol:
Seinast breytt af sveinn þann 14 Sep 2008, 22:50, breytt 1 sinni alls.
Sveinn