Erfiður í gang..

#1
Sælir
Ég á 190E sportline, 92 módel.
Málið er að þegar hann hefur staðið í svona 6-7 tíma þá er hann leiðinlegur í gang, eins og hann fái ekki bensín.
Tekur mig svona 5-10 min á morgnanna að koma honum af stað en um leið og það gerist þá gengur hann fínt.
Þegar ég er að starta honum þá hikstar hann bara og ef ég stíg á bensíngjöfina þá bara gefst hann upp. Svona gengur þetta í 5-10 min þangað til hann hrekkur í gang og gengur á ca 500 snúningum en ef ég gef honum smá bensín þá drepur hann á sér. Eftir það tekur 2-3 tilraunir að fá hann almennilega í gang.

HVað gæti málið verið?


Davíð
190e 2.0 1991

#2
var með sama problem í 190e árg 91 2000cc,,keypti allt nýtt í kveikjuna í tb.is(um 25þús kall) og bíllinn var sem nýr eftir það(verst að ég seldi hann viku seinna)
en hann var búinn að vera svona í um eitt ár.

Þurfti líka að skipta um vacum gúmmí sem er boltað undir innspýtingunni..hann dró falst loft þar,,smá rifa..(var lengi að fatta það helvíti)
Kv.Heimir Jónsson

W124 300E 4matic 1987(svartur)
w126 500se 1986 (ljósgrænn)


Heimirjons@hotmail.com
S:699 3068

#3
hefur þú prufað að spreyja startspreyi á soggreinina og slöngur í kringum greinina hann ætti að snarbreytast ef hann er að draga loft framhjá :)

#6
Fæst í varahlutaverslunum eins og N1 eða Stillingu
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

#7
Einnig athugandi hvort að kaldstarts spíssinn virki, hann sprautar bensíni inná greinina þegar bíllinn er kaldur.
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

#9
Upp með gamlan þráð :D

Er einhver laus eins og einn sunnudag og væri til í að kíkja á þetta með að draga loft og öryggið fyrir mig ásamt að skipta um, að ég held, drifskaftsupphengju.

Cold hard cash í boði.
Davíð
190e 2.0 1991

#10
Ég var með svipað start vandamál á mínum 190E 1985 og öryggið var farið. Í öryggja boxinu vinstramegin undir glæralokinu. Búinn að virka flott eftir að ég skipti um þetta rauða flata öryggi (kostaði heilar 83krónur á bensínstöð). Prófa það ódýrasta og einfaldasta fyrst. :wink:
Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?
cron