Hjálp! Læst bensínlok

#1
Nú er ég í "smá" vanda... Þannig er að Vacumdælan (eða hvað það heitir) bilaði í bílnum og hún var tekin úr sambandi. Hún stjórnar samlæsingum og þjófavörn og fl. Það er svo sem hægt að lifa við það þangað til ný verður keypt $$$ EN í gær ætlaði ég að fara að taka bensín og kemst þá að því að bíllin hefur verið í lás þegar dælan var tekin úr og þar af leiðandi er lokið læst!!! Og bíllinn er nánast bensínlaus! :evil:

Er til eitthvað trix til að opna lokið? Var að vonast til að ég fengi þessa dælu úti því hún kostar tæp 90þ hérna... En þetta verður kanzki til þess að ég "verð" að taka hana...

Einn óendalega pirraður...


M.Benz W210 E320 '00

#3
Þú verður að opna skottið og taka innréttinguna hægrameginn (þar sem benzínlokið er) þar inn er rautt handfang toga í það.

#4
Flott... Ég næ ekki að opna skottið með lyklinum hehe, en takk, reyni eitthvað að finna útúr því!

Takk fyrir þetta!
M.Benz W210 E320 '00

#5
ég myndi nú bara sleppa því að fá mér nýja vacum dælu.

Bara fara til fagaðila og láta setja fjarstýrðar-samlæsingar í bílinn.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#6
Ásgeir Yngvi skrifaði:ég myndi nú bara sleppa því að fá mér nýja vacum dælu.

Bara fara til fagaðila og láta setja fjarstýrðar-samlæsingar í bílinn.
Það eru fjarstýrðar samlæsingar á öllum w210 að ég best veit :?
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#7
JBV skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:ég myndi nú bara sleppa því að fá mér nýja vacum dælu.

Bara fara til fagaðila og láta setja fjarstýrðar-samlæsingar í bílinn.
Það eru fjarstýrðar samlæsingar á öllum w210 að ég best veit :?
Já ég veit ekki afhverju, en ég var búinn að ákveða að við værum að tala um eldri bíl :oops: :?
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#9
Málið er að það komst vatn í boxið... Og það hefur lengi verið haldið að vatn & rafmagn fara ekki vel saman :)
M.Benz W210 E320 '00
cron