Var nú bara að fara yfir þráðinn og ég segi það sama og Þröstur, aldrei hef ég séð neinn rugla eins mikið um benza eins og hann "190e2597".
Ætla nú ekki að fara í þyngdar umræðuna og C-E-S týpurnar þar sem flestir nema "190e2597" eru með það á hreinu.
Það eina sem hefur komið upp úr "190e2597" af viti er að ef þú "davids" er með hvarfakúta undir bílnum hjá þér væri það fyrsta ráðið að losna við þá til að fá meira afl (að mínu mati væri óþarfi að fá sér einhvern turbokút). Og verkstæðið heitir BJB ekki BJP eins og "190e2597" sagði. Og já oft getur opnara púst gefið auka kraft en að mínu mati ekki þess virði nema þú fílir endalausan hávaðan meðan þú keyrir.
.. svo að láta taka upp vélina þína , það væri gott að skifta um allar pakkningar og
pakkdósir svo þarf stundum að plana hedd og meira en líklegast ekkert á þessum benz
nema hann sé ílla farinn , vélinn getur bara verið mökkskítug af drullu og allskonar
Ef hann ætlar að taka vélina hjá sér í gegn þá er heddið tekið af, skipt um ventlaþéttingar, ventlar og ventlasæti slípuð og heddið hreinsað og planað. Alltaf þegar hedd er tekið af skal skipt um heddpakkningu og heddið planað (ekki stundum). Best væri að kaupa pakkningarsett sem inniheldur allar pakkningar sem viðkoma heddinu. Ef taka ætti vélina upp frá a-ö myndi viðkomandi einnig skipta um tímakeðju og strekkjara, sveifarásslegur og stangarlegur ásamt stimpilhringjum og hóna strokkana og gera þetta af fagmennsku ekki bara skipta um pakkningar og pakkdósir eins og "190e2597" talar um.
Það væri líka mjög vel sloppið að borga um 100-110 þús fyrir svona aðgerð eins og "190e2597" talar um hér einhverstaðar. By the way við það að plana heddið eykst þjapphlutfallið sem ætti að skila sér í betri virkni í vélinni.
betri bruni 4 hausar stað 1 , virkar mjög vel á vélum sem eru t.d bara með 2 ventla
á hvern cylender
Þetta sýnir nú enn og aftur að þú hefur ekki hundsvit á bílum. Það getur vel verið að þú hafir látið einhvern sölumann uppí bílanaust ljúga þig fullan að þú fáir meiri kraft við 4 póla kerti en 1 póla og það er hlægilegt að þú skulir halda að þau gefi þér 15% aflaukningu. Ef þú vissir eitthvað í rafmagnsfræði vissir þú að rafmagnið fer alltaf styðstu leið til jarðar og þar af leiðandi fer einungis neisti til eins póls þ.e.a.s. til þess póls sem er minnst eyddur. Þar sem lengri tíma tekur fyrir 4 póla að eyðast en 1 er endingin á kertinu það eina sem 4 póla kerti hafa fram yfir hin.
Ef ske kynni að "davids" þú tækir vélina hjá þér í gegn væri mjög heimskulegt að setja svona "svepp" kraftsíu. Út af því að hún er opnari er greiðari aðgangur fyrir ryk og aðra drullu til að komast inn á vélina og þar af leiðandi skemmist hún fyrr. Krafturinn sem fæst við það að setja svona síu er bara það lítill að han er oft ekki þess virði.
Það má eiginlega segja að benz kunnáttan hjá "190e2597" sé jafngóð og stafsetningin hans.
