Eru ekki allir orðnir sáttir bara...

#111
Þetta hefur nú aldeilis verið athyglisverð umræða sem gekk út á vélaskipti í upphafi. Ekki það að ég ætli eitthvað að draga í efa þær tölur sem menn nefna hér varðandi aflaukningu og eldsneytissparnað að þá hugsar maður óneytanlega um það hvers vegna framleiðendur setja bílana sína ekki upp með þessum aukahlutum sem bæði auka afl og minnka eldsneytiseyðslu á þess að það hafi teljanleg áhrif á endingu vélanna. Hvort sem það heitir Hiclone, K&N eða eitthvað annað að þá er það bara mjög gott ef þetta hefur teljanleg áhrif hjá mönnum.

Þegar ég las yfir þráðinn með öllum þessum prósentum um aflaukningu og sparnað að þá datt mér í hug ein gömul saga úr sveitinni af einum sem var að versla sér alveg "flúnkunýjan" Landrover. Þegar kallinn mætir á honum í sveitina þá fer hann nú aldeilis að fræða menn um það hvað þetta sé góður bíll. Þegar hann hafði loks lokið upptalningu á öllum prósentunum í eldsneytissparnaði þá var það komið í 110% og bílinn því orðinn nokkuð hagkvæmur í rekstri.

Hafiði það annars bara gott og fáið ykkur piparkökur eins og burri minnist á...
kv. Eyþór


C 200 diesel (W202)´94 ek. 470000
Alveg heil 75 hö.

Re: yeah

#112
Hlynzi skrifaði:
190e2597 skrifaði:allavegana 5% , og með stærra pústi eða opnara pústi getur það til samans verið 15-20% . bíllinn er líka miklu snegri upp , samt ef bíllinn er eldgamall og svona styttist endingatíminn á honum til munna , enda eru sumar vélar bara ekkert bigðar fyrir neitt annað en "dól" keyrslu , ætti nú samt að vera í fínu lagi á þessari 6cylendra vél , bara farða huga að því að takana í gegn
K&N sía sem er hringlaga og staðsett neðarlega í bílnum gæti verið að gefa upp þessa prósentu tölu, (1-10 hestöfl kannski) Panel filterar (eins og ég er með) Er víst að gefa mér um 1-2 hestöfl, en ég keypti þetta útafþví að ég fékk þetta ódýrt, bíllinn eyðir eitthvað aðeins minna og ég þarf ekki að verzla mér nýja loftsíu aftur.

Að opna pústkerfi getur samt verið óþarfa hávaði eða leiðinlegt hljóð, hjá mér tókst þetta vel (Veit ekki hver gerði þessar breytingar) og með Remus endakút er bara helvíti skemmtilegt hljóð í bílnum hjá mér.
Ég reikna með að það sé þægilegast að láta setja rör í staðin fyrir hvarfakútana, þeir draga ótrúlega úr aflinu sem skilar sér.

neineineineinei!!! þú færð ekki 1-10 hestöfl útúr loftsíu.. ef þú ætlar að auka aflið eitthvað hjá þér þá þarftu að koma að öllum hlutum.. ef þú ætlar að auka loftflæðið inn á vélina þá þarftu að auðvelda henni útblásturinn og auka bensínflæðið jafn mikið á móti.. eru fast& the furius hugmyndafræðinar alveg að fara með liðið hérna.. ég á K&N síu í mína 150 hestafla mözdu.. ég bara þori varla að setja hana í.. mótorin og framhjólastellið hljóta bara að rífa sig laust frá boddyinu á inngjöf og skilja mig eftir meðað við trúnna hjá sumum hérna..

ef þið viljið benza sem er auðveld að tjúna og hægt að ná sér í nokkur hestöfl með sona míní breytingum eins og sumireru greinilega svo trúaðir á þá skulið þið fá ykkur kompressor bíla, þeir eru með blásara sem er auðveld að auka blásturinn á og þar af leiðandi dæla inn hestöflum... á eigin ábyrgð samt 8)
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

#113
Hlynzi skrifaði:Ég gæti alveg trúað að 190E 2.6 bíllinn væri 1600 kíló, með eigandanum.
já ef að eigandinn er flóðhestur :!:
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#114
já þunglyndur flóðhestur sem étur af sér sorgina..
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

#115
ég verð nú bara að segja eins og er að mórallinn yfir þessum þræði er nú bara allur að koma til :)
M.Benz 400SE (W140) '91 Seldur
M.Benz C200 CDI (W203) '02 Seldur
M.Benz 190 E (W201) '91 Seldur
M.Benz 260 E 4Matic (W124) '88 Seldur
M.Benz 230 TE (W124) '92 Seldur
M.Benz 280 SE (W126) '81 Seldur

#116
Í öllum æsingnum hafa menn líklega gleymt að spá í það að á 500 bílnum eru líklega talsvert öflugri bremsur, annað pústkerfi, stífari gormar og jafnvel öðruvísi hjólabúnaður.

Þannig að líklega er nú ódýrara að selja 160 bílinn og kaupa 500 í góðu standi. :wink:
Björn

W203 C200 Kompressor 2005 - Konubíllinn
Suzuki Jimny 2003 - Á hásingum eins og G-wagon :)
Volkswagen Vanagon Westfalia Camper 1984 - Saab knúinn
Mercury Comet 1974 - 351 Windsor

#117
gwagon skrifaði:Þannig að líklega er nú ódýrara að selja 160 bílinn og kaupa 500 í góðu standi. :wink:
Jú það er ákkúrat það sem ég, ásamt fleirum, er búinn að benda á ;)

reyndar 260 en ekki 160 :ulla:
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#118
Þessi þráður er nú alveg stórkostleg lesning :shock:


Fegin að þessum sandkassaleik virðist lokið og allir séu farnir inn að þvo sér... :wink: ...enda eru að koma jól! :lol:
Sveinn

#119
bíllinn er víst 1380 kg , ekki 1600 ;( ,,, nei nei bara fínt og ég glaður ég hef misslesið það bara . hljómurinn á pústinu fer nú bara eftir hver og hvernig það er gert , enda áttu nú alveg að geta ráðið því
og ívar ertu enþá að tauta um að kraftsíur gefi eingin auka hestöfl ?
Benzar ..

E500 avantgarde 05" 60.000 km
190e 2.6 Sportline 93" ek 121.000 km seldur
190e 2.0 91" ek 198.000 km seldur
190 2.0 87-88 ek 440.000 km r.i.p

#120
190e2597 skrifaði:bíllinn er víst 1380 kg , ekki 1600 ;( ,,, nei nei bara fínt og ég glaður ég hef misslesið það bara . hljómurinn á pústinu fer nú bara eftir hver og hvernig það er gert , enda áttu nú alveg að geta ráðið því
og ívar ertu enþá að tauta um að kraftsíur gefi eingin auka hestöfl ?
Hann á að vera rétt tæp 1300 kg.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin