loft á bremsukerfi í 190E '93

#1
Góðan daginn, er með smá vandamál í sambandi við bremsurnar að aftan hjá mér. málið er það að ég tók dælurnar af til liðka þær og skipta um þéttihringi. Núna fæ ég ekki helv** loftið af kerfinu að aftan. Ek semsagt um á hálf bremsulausum bíl (frekar slæmt). Ég hélt að þetta væri eins á öllum bílum en það reyndist greinilega bölvuð vitlaysa hjá mér. Bíllinn er með ABS og var ég búinn að fá upplýsingar um að það ætti að vera svissað á bílinn meðan ég væri að þessu en allt kemur fyrir ekki. Hjálp !!


#3
Ég hef lent í nákvæmlega sama hlutnum, og ég er 99% viss um að þetta er það sama. Ef þú skoðar forðabúrið fyrir bremsuvökvann sérðu að það er skift í tvö hólf og aftara hólfið er sennilega tómt hjá þér. Það byrjar ekki að leka yfir í það fyrr en það fremra er orðið svo gott sem fullt...
Jón Ottesen
S. 8997383
jonott@simnet.is


Mercedes Benz 300 E 24V "89
Mercedes Benz E 430 4Matic "00

#4
Mér hefur reynst best á þessum ABS Benzum að hella bara boxið fullt og láta bílinn standa nokkuð réttan og fara og losa báða nipplanana að aftan lítillega og bíð þar til það fer að leka út um þá vökvi. Þá loka ég þeim og ýti simplunum í dælunni alveg inn í dæluna. Fer svo og stíg rólega tvisvar þrisvar á bremsupedalann og ýti svo aftur stimplunum inn. Það litla loft sem ekki fer út í þessari aðgerð fer með tímnum út af kerfin.

Ekki fara út í pumpaðferðina. Hún virkar ekki nógu vel að mér finnst.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#6
Tunglid skrifaði:Erum við þá að tala um að hafa bílinn á búkkum allan hringinn?
Já búkkar eru þjóðráð ef þú hefur ekki aðgang að lyftu (sem fæstir hafa). Bíllinn má standa aðeins hærra að framan ef búkkarnir eru ekki eins allan hringinn. Hann má ekki standa hærra að aftan ef tappa á lofti af afturdælunum. :wink:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#8
Tunglid skrifaði:Jæja þá er ekkert að vanbúnaði en að fara út á plan í skítagallann og reyna fyrir sér með nýfengni þekkingu :D
Góða skemmtun ! :wink: :lol: :lol:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#9
Þetta gekk allt eins og í góðu ævintýri. Setti bílinn á búkka, framendinn aðeins hærri. Opnaði báða ventla að aftan og eftir smá bið komu dropar úr dælunum. Lokaði fyrir og pumpaði 5 sinnum. Opnaði ventilinn á annari dælunni og beið eftir vökva. Þetta gerði ég aftur og aftur og aftur og aftur. Þangað til ég var orðinn ánægður með verkið. Núna ek ég stoltu á bíl með bremsum. Takk fyrir alla hjálpina.

#10
Tunglid skrifaði:Þetta gekk allt eins og í góðu ævintýri. Setti bílinn á búkka, framendinn aðeins hærri. Opnaði báða ventla að aftan og eftir smá bið komu dropar úr dælunum. Lokaði fyrir og pumpaði 5 sinnum. Opnaði ventilinn á annari dælunni og beið eftir vökva. Þetta gerði ég aftur og aftur og aftur og aftur. Þangað til ég var orðinn ánægður með verkið. Núna ek ég stoltu á bíl með bremsum. Takk fyrir alla hjálpina.
:wink: :wink: :wink: :wink: :wink: :wink: :wink: :wink:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)
cron