Ekki ætla ég að mótmæla meistaranum, en hins vegar held ég að það sé handfangið (læsingin) sem sé stíf (hefur gerst áður). Ég hef alltaf getað opnað og lokað lúgunna með annari höndinni (er kanski bara svona sterkur ), þannig að ég held að brautirnar séu í lagi. Hins vegar þarf að halda þeim hreinum eins og "Mercedes-Benz" bendir réttilega á. Í snjó og frosti er mín reynsla að betra sé láta lúguna bara eiga sig og bíða eftir skárra veðri. Enda er þetta kallað sun roof á útlensku.Mercedes-Benz skrifaði:WD-40 og topplúga Það er slæm blanda sem er avísun á vandræði. WD-40 er fitukend olía sem hefur þann mjög svo slæma ávana að safna í sig riki og óþverra úr umhverfinu. Þegar þessi blanda er farin að verða það sem á að halda topplúgu liðugri er mönnum farið að ratast röng aðferð á hönd til þess arna. Rikið og óhreynindin sem að WD-40 og önnur fljótandi smurefni safna í sig breytast nefnilega í slípimassa sem skemmir brautirnar og gerir hjólinn í lúgunni köntuð þannig að þau hætta að rúlla og fara bara að skruðna eftir brautunum í þakinu og þar með endanlega eyðileggja allt topplúgukerfið með öllu. ÞAÐ MÁ ALLS EKKI SMYRJA TOPPLÚGUBRAUTIR MEÐ OLÍU. Brautirnar á bara að þrífa með efnum eins og sápu og/eða fituleysandi efnum og eina liðkunarefnið sem bera má á brautirnar er venjulegt bílabón. Bílabón safnar ekki í sig riki og drullu heldur hryndir henni í burtu og það er það sem til þarf til að halda topplúgu liðugri um allan aldur og æfi, ásamt því að til að lúgan haldist alltaf liðug þarf að nota hana mjög oft og reglulega. Topplúga sem aldrei er notuð festist mjög fljótt og er við svo búið orðin orðin eilífðar vandræðagripur sem aldrei er í lagi og HANANÚ.
#11
Björn
W203 C200 Kompressor 2005 - Konubíllinn
Suzuki Jimny 2003 - Á hásingum eins og G-wagon
Volkswagen Vanagon Westfalia Camper 1984 - Saab knúinn
Mercury Comet 1974 - 351 Windsor
W203 C200 Kompressor 2005 - Konubíllinn
Suzuki Jimny 2003 - Á hásingum eins og G-wagon
Volkswagen Vanagon Westfalia Camper 1984 - Saab knúinn
Mercury Comet 1974 - 351 Windsor