Jæja meistarar,
nú er miðstöðin hætt að virka í mínum fína W124 1992.
Virkaði fínt þangað til í gærkvöldi, hitar vel og loftælingin kælir vel... en nú er allt stopp, þ.e. það er enginn blástur.
Öryggið er í lagi svo að ekki er það vandamálið... (eða hvað?).
Fór að heyra einhver aukahljóð fyrir ca. viku sem fóru þó strax um leið og ég jók eða minnkaði blásturinn.
Einhver ráð?
Mér skilst að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem að miðstöðin hafi klikkað í þessum bíl....
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#2Hljómar eins og bilaður miðstöðvarmótor 
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Sími: 897-0370
Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#3Er bíllinn með autoklima ??
Ef svo er þá eru yfirgnæfandi líkur á að mótstaðan sé farinn
þetta fór i bílnum hjá frúnni,,,,,,,,,
ATH,,, stykkið kostar 14x.000 i Öskju
en þessu var reddað á ebay fyrir mig,,,,,,,, koastaði 25 með þóknun og öllu
Ef svo er þá eru yfirgnæfandi líkur á að mótstaðan sé farinn
þetta fór i bílnum hjá frúnni,,,,,,,,,
ATH,,, stykkið kostar 14x.000 i Öskju
en þessu var reddað á ebay fyrir mig,,,,,,,, koastaði 25 með þóknun og öllu
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#4Er ekki með Autoklima, fékk síðasta mótorinn á tilboðinu hjá Öskju á MJÖG góðu verði 
Nú er bara að skipta um
Nú er bara að skipta um
Seinast breytt af Benni þann 09 Mar 2015, 21:24, breytt 1 sinni alls.
Benedikt Hans Rúnarsson
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#5Miðstöðin hjá mér hætti að virka fyrir þó nokkru, í áföngum. Reyndar engin óhljóð.
Fyrst hætti hún að virka á 1, svo 2 og svo framvegis. Mótorinn talinn í lagi.
Ég hélt þetta væri mótstaðan. Skipti um hana en það breytti engu. Þá beindist grunur að rofanum.
Reif hann úr og skoðaði. Þá var komið svo mikið gjall á snerturnar að þær voru hættar að leiða.
Hreinsði það af og allir hraðar fóru að virka.
Svolítið sérstakt.

Jón Ketilsson S. 8662773
Að eiga Benz eru trúarbrögð.
Að eiga Benz eru trúarbrögð.
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#6Hvur þremillinn... Bíllnum var lagt í 5 tíma í bílakjallarann í Hörpu og þegar frúin ók þaðan í burtu þá hrökk miðstöðin í gang og virka alla helgina nema í gærkvöldi, þegar það var mikið frost. Í morgun var hún hins vegar aftur komin í gang
Einhverjar hugmyndir?
Var búinn að prófa "allar mögulegar lausnir af netinu án þess að rífa eitthvað í sundur"
Einhverjar hugmyndir?
Var búinn að prófa "allar mögulegar lausnir af netinu án þess að rífa eitthvað í sundur"
Benedikt Hans Rúnarsson
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#7Benni skrifaði:Hvur þremillinn... Bíllnum var lagt í 5 tíma í bílakjallarann í Hörpu og þegar frúin ók þaðan í burtu þá hrökk miðstöðin í gang og virka alla helgina nema í gærkvöldi, þegar það var mikið frost. Í morgun var hún hins vegar aftur komin í gang![]()
Einhverjar hugmyndir?
Var búinn að prófa "allar mögulegar lausnir af netinu án þess að rífa eitthvað í sundur"
Bíllinn er augljóslega að benda á að hann eigi að fá nýtt lakk og vera sumarbíll hér eftir.
Teddi 
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#8Benzari skrifaði: Bíllinn er augljóslega að benda á að hann eigi að fá nýtt lakk og vera sumarbíll hér eftir.
Segðu... ef vetrarbíll fjölskyldunnar skyldi ekki hafa tekið upp á því í haust að gerast afæta á veskið mitt þá hefði e.t.v. eitthvað orðið úr því
Frau Mercedes er búin að standa sig sem hetja frá því að Kóreuhreppsgræjan fór á fyllerí... með þessari einu undantekningu
Benedikt Hans Rúnarsson
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#9Prófaðu að hreyfa við lyklinum þegar bíllinn er í gangi, gæti verið svissbotninn sem sé að hrekkja.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226
Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
Re: W124 - miðstöðin hætt að virka...
#10Hmm... já ok... geri þaðHlynzi skrifaði:Prófaðu að hreyfa við lyklinum þegar bíllinn er í gangi, gæti verið svissbotninn sem sé að hrekkja.
Benedikt Hans Rúnarsson