Síða 1 af 1

W124 hvaða box er þetta undir aftursætinu hægra megin?

Innsent: 21 Okt 2014, 00:19
frá Benni
Tók úr aftursætið í gær, var að máta cover sem ég er að hugsa um að nota í vetur (ekki fallegt en ver sætin :twisted: ). Rak þá augun í eitthvað box sem fékk mig til að hugsa um hvort þarna væri kominn hávaðaseggurinn sem heyrist alltaf í þegar bíllinn er í gangi. Hélt að það væri bensíndælan.... en viti menn, þegar ég startaði bílnum þá kom hljóðið úr boxinu og hætti ekki fyrr en ég slökkti á bílnum. Dóttir mín hefur "setið ofan á" þessu boxi og spyr mig reglulega af hverju þessi hávaði sé í bílnum :roll:

Er þetta einhver dæla fyrir central-læsinguna? Reynd að Googla þetta og fékk upp að þetta gæti verið "Electric door lock vacuum pump´"
Sé að hún er í einangrunarhulsu en það var ekki svona hávaði í öllum hinum þremur W124 bílunum sem ég átti :roll:
Hefði auðvitað átt að athuga þetta í varahlutabílnum á meðan ég átti hann, central læsingarnar virkuðu þar :roll:
En ég var búinn að skrifa þetta á bensíndæluna :?

Hér er gripurinn, léleg mynd en e.t.v. segir þetta eitthvað.
Hvað ætli sé að ef það er svona helv... mikill hávaði í þessu? N.b. central læsingin virkar alltaf en er reyndar búinn að taka öryggið úr sambandi vegna "rafmagnsleka" sem ég á eftir að staðsetja :roll:
Það skiptir engu máli þó svo að central læsingin virki ekki, það er alltaf bölv... hávaði í þessum grip :shock:

Re: W124 hvaða box er þetta undir aftursætinu hægra megin?

Innsent: 21 Okt 2014, 00:34
frá Mercedes-Benz
Þetta er samlæsingardælan :tumbsup2:

Re: W124 hvaða box er þetta undir aftursætinu hægra megin?

Innsent: 21 Okt 2014, 01:45
frá Benni
Dettur mönnum nokkuð í hug af hverju hún er svona helv hávær, "alltaf í gangi" ??

Re: W124 hvaða box er þetta undir aftursætinu hægra megin?

Innsent: 21 Okt 2014, 06:29
frá BaraBenz
Gæti verið að hún sé biluð? Svo getur líka verið farinn loftpungur, kútur eða slanga þannig að það nær aldrei að virka.

Mjög oft lokinn fyrir bensinlokið. Þá er hægt að taka hann úr sambandi og blinda. Gert innan úr skotti.

Ég held ég sé með svona dælu (auka) í skottinu hjá mér.

En það eru víst nokkrar gerðir til.

Re: W124 hvaða box er þetta undir aftursætinu hægra megin?

Innsent: 21 Okt 2014, 09:45
frá Benni
Samlæsingarnar virkuðu, a.m.k. fyrir hurðir og skott en ég tók öryggið úr þar sem það er e-ð að sprengja öryggi og annarsstaðar "lekur" rafmagnið og tæmir þá geyminn. Er í lagi að keyra'nn svona, læsi bara "manualt" og þarf ekki ljós í mælaborðinu eða tökkunum á daginn ;)
Viðvörunarljós virka auðvitað sem og önnur öryggistæki :mrgreen:
Þarf að athuga þetta með bensínlokið, þ.e. hvort læsingin þar sé biluð og það sé ástæðan fyrir því að dælan er alltaf í gangi :?
Takk fyrir ábendinguna :tumbsup2:

Re: W124 hvaða box er þetta undir aftursætinu hægra megin?

Innsent: 02 Nóv 2014, 18:22
frá andrz
Man eftir því þegar samlæsingardæla fór í mínum. Hún gekk stöðugt og það var byrjað að koma reykur og mikil rafmagnslykt. Ef það er hávaði í henni mæli ég hiklaust með að taka hana úr sambandi. Man að þegar hún fór (að mig minnir í kringum 2003) þá kostaði hún um 50 þúsund kall í umboðinu.

Á þessum tímapunkti ákvað ég að fara að fá mér vinnu þarna niðrá Skúlagötu svo ég fengi þessa hluti ódýrara ;)