Síða 1 af 1

Ljósaleysi í W210

Innsent: 12 Jan 2014, 00:32
frá Bragi1
Sælir

Kannast fleiri við að ljós detti út á W210? Önnur bakkperan og bremsuljósið hættu að virka (með tilheyrandi villumeldingu þegar ég starta bílnum) og ekkert lagaðist þó ég skipti um perur og socketið sem þær sitja í.

Einhverjar uppástungur?

Re: Ljósaleysi í W210

Innsent: 12 Jan 2014, 03:58
frá Cronzi
hreinsa upp snerturnar

Re: Ljósaleysi í W210

Innsent: 12 Jan 2014, 15:09
frá andrz
Myndi skoða loomið milli skottloks og bíls, átti það til að fara í sundur þar bæði í 210 og 211 bílnum. Það er að mig minnir í boganum vinstra megin.

Re: Ljósaleysi í W210

Innsent: 14 Jan 2014, 01:34
frá Mercedes-Benz
Snerturnar í númersljósunum áttu það líka stundum til að ryðga í sundur