Sælir félagar.
Er að skoða þann kost að setja beinskiptan 5 gíra kassa aftan á OM 603 túrbódísel vél. Hvaða möguleikar eru í boði? Getur verið að hægt sé að nota 5 gíra kassa úr bensínbíl kanski E 300 eða 300E? Eru afturendarnir á þessum vélum svipaðir eða eins? Hefur þetta verið gert? Á maður kanski að athuga með kassa úr 200-250D og eru þeir nógu sterkir fyrir þessa vél? Man ekki eftir að hafa séð 300D öðruvísi en sjálfskipta svo ég býst við að gírkassar úr þeim séu vanfundnir.
Ástæðan fyrir þessum vangaveltum er sú að skiptingin í mínum fagnar tvítugsafmæli um þessar mundir (þó hún gæti örugglega dugað tíu ár í viðbót), en hún á það til að höggva milli gíra og svo er þetta 4 gíra skipting sem vantar yfirgír. Að mínu mati er hún að stela 1-2 lítrum á hundraðið.
Kv. Bragi
Gírkassar í W124 300D
#1Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k
Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k
Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu
Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k
Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu