Hitastýring og hraðastýring á miðstöð.

#1
Góðan daginn.

Ég er með tvö vandamál í bílnum hjá mér. Mig grunar að þau gætu verið óháð. En er þó ekki viss.

Hitastýring:
Á heitum dögum þegar ég er að nota Air Condition og ákveð að minnka kælinguna, þá á hún það til að blása alveg því heitasta. Jafnvel þó ég snúi "hitatakkanum" bara örlítið til baka.

Til þess að laga það hefur aðeins dugað að drepa á bílnum í smá stund.

Hraðastýring:
Hún á það til að vera alveg á random blæstri, óháð stillingu á takka.
En stundum virka hraðarnir eðlilega.


Hafið þið einhverjar hugmyndir hvað þetta gæti verið?


Mercedes Benz C180 w202 '95