Tímakeðja ofl C200

#1
Sælir

Núna er maður loksins að spá í að fá sér stjörnu aftur, þetta er C200 bíll sem búið að taka eilítið í gegn, en hann er ekinn 220þ km

ég var að spá í með tímakeðju og aðra slitfleti í þessarri vél, er það eitthvað sem maður á að láta kanna eitthvað áður en maður kaupir svona bíl ?

Kv Atli Þór


Mercedes Benz 260 4Matic w124 1986
Mercedes Benz C200 Kompressor w202 1997
Mercedes Benz C280 w202 1999

Re: Tímakeðja ofl C200

#2
Yfirleitt fer að heyrast hljóð í tímakeðjunni, þá á hún mjög stutt eftir. Ef ekki þá er mælt með því að skipta um hana á 200 þús. km fresti (aðallega strekkjara), en fínt að drífa í því oftast).

Mesta vanrækslan í þessum bílum eru yfirleitt varðandi stífur og gúmmífóðringar, svosem enginn brjálaður kostnaður að skipta um það, en menn vilja yfirleitt trassa það.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is