Re: hættuleg spindilkúla

#2
Já ég held að það sé alveg ástæða til að ath spindilkúluna við og við á W201 (kannski ekki alveg á tveggja ára fresti samt) Ég lenti í þessu sjálfur með minn 190E þegar ég var einungis að bakka í stæði. Þakkaði mínum sæla að spindilkúlan hefði ekki brotnað deginum áður í MBKÍ rúnti upp í Hvalfirði. :shock:
Seinast breytt af JBV þann 02 Mar 2013, 08:21, breytt 1 sinni alls.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: hættuleg spindilkúla

#4
Spurning að skoða þetta á E220 hjá mér, það er eitthvað brak í honum þegar hann fjaðrar og mér finnst hann vera pínulítið taugaóstyrkur í akstri, kannski er það bara huglægt.
En í skoðun prófaði hann einmitt að tjakka upp undir bílinn og hreyfa við dekkinu og vildi meina að legan væri slöpp, en það er ekkert slag í henni, en eins og alltaf er hægt að hreyfa dekkið örlítið, svipað og að aftan þar sem ég verð kominn með allt saman nýtt bráðum.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: hættuleg spindilkúla

#5
Hlynzi skrifaði:Spurning að skoða þetta á E220 hjá mér, það er eitthvað brak í honum þegar hann fjaðrar og mér finnst hann vera pínulítið taugaóstyrkur í akstri, kannski er það bara huglægt.

Ekki vitlaust fyrir þig að athuga það allavega. E220 er kominn við aldur, þ.a.l. ekki ólíklegt að spindilkúla sé farin að slappast.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: hættuleg spindilkúla

#6
Ég hef séð þetta nokkrum sinnum, en kúlurnar eru venjulega orðnar 20 ára gamlar þegar þetta gerist. Það þykir ágætt ef þær ná 20 mánuðum í nýju bílunum, þetta virðist ekki gerast nema það sé fullt lagt á þá.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: hættuleg spindilkúla

#7
JBV skrifaði:
Hlynzi skrifaði:Spurning að skoða þetta á E220 hjá mér, það er eitthvað brak í honum þegar hann fjaðrar og mér finnst hann vera pínulítið taugaóstyrkur í akstri, kannski er það bara huglægt.
En í skoðun prófaði hann einmitt að tjakka upp undir bílinn og hreyfa við dekkinu og vildi meina að legan væri slöpp, en það er ekkert slag í henni, en eins og alltaf er hægt að hreyfa dekkið örlítið, svipað og að aftan þar sem ég verð kominn með allt saman nýtt bráðum.
Ekki vitlaust fyrir þig að athuga það allavega. E220 er kominn við aldur, þ.a.l. ekki ólíklegt að spindilkúla sé farin að slappast.
Já hef þetta bakvið eyrað, gefa þessu nokkur hundruð km og tjekka á þessu aftur, það er alveg pæling að fara í gegnum framhjólabúnað bílsins sem fær líklegast Sportline og alvöru bremsur (300-320 mm diska og 4 stimpla dælur, eins og finnast í 420, 500E og fl. Geri ráð fyrir að taka allt í gegn í leiðinni, legur, stífur og jafnvel zinkhúða eitthvað meira, þá fyrst verður hægt að hjólastilla bílinn almennilega.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: hættuleg spindilkúla

#8
Spindilkúlur í W124 og W201 eru hannaðar þannig að ef það er mikið slit í þeim að þá eiga þær frekar að poppa í sundur lagt er mikið á stýrið og oftast gerist þetta því á sáralítilli eða engri ferð, enda hef ég nánast eingöngu heyrt af spindilkúlum í þessum bílum fara í sundur inn á eitthverjum bílaplönum við það að leggja í stæði. Það að þetta hrökkvi í sundur á fullri ferð á beinum og breiðum veginum er mjög fáheyrt þó það hafi vissulega komið fyrir eins og sjá má á þessu dæmi með 190 bílinn her að ofan.

Það er vissulega gáfulegt að fylgjast mjög vel og reglulega með ástandi bílsins síns, sérstaklega ef hann er farin að eldast og skoða hann vel og reglulega, nú eða fara með hann reglulega í létta ástandsskoðun.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: hættuleg spindilkúla

#9
Það getur verið snúið að finna slit í spindlum á W124 og W201. Ég geri það þannig að ég tjakka undir stýfuna og fylgist með upp og niður hreyfingunni í kúlunni. Það má vera örlítil hreyfing í henni en ekki meira en 2-3 mm.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: hættuleg spindilkúla

#10
Það fór nú að braka í spindilkúlu hjá mér og var mér sagt að það væri kominn tími til að skipta henni út.

Er ekki möguleiki að menn keyri bara alltof lengi eftir að það fer að heyrast í þeim.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.