ML vesen

#1
sælir, ég er með ML Benz 01 en það virka ekki inniljósin í honum né kemur ljós á mælaborðið(s.s baklýsingin á mælana) það virkar allt í mælaborðinu allir mælar og allir digital mælar nema þegar ég sný ljósatakkanum í parkljós og síðan aðalljós þá slökkna ljósin í digital mælunum og sést ekkert en samt virka mælarnir sjálfir ennþá,hraða,snúnings,bensín,hiti virka alveg, en er eitthvað öryggi sem gæti verið að stríða mér þó ég held ég hafi leitað af mér allan grun með það.
ég hef heyrt að það sé einhver dagljósabúnaður sem dimmir þessi ljós þegar misnunandi birtuskilyrði eru við, og hvort það hafi þá bilað eða hvort menn kannist eitthvað við þetta vandamál.

kv.Einar.


BMW E-32 750IL 1988 KY-118
BMW E-46 318IA 2000
http://www.Bilaglerid.is

Re: ML vesen

#2
BMW_Owner skrifaði:sælir, ég er með ML Benz 01 en það virka ekki inniljósin í honum né kemur ljós á mælaborðið(s.s baklýsingin á mælana) það virkar allt í mælaborðinu allir mælar og allir digital mælar nema þegar ég sný ljósatakkanum í parkljós og síðan aðalljós þá slökkna ljósin í digital mælunum og sést ekkert en samt virka mælarnir sjálfir ennþá,hraða,snúnings,bensín,hiti virka alveg, en er eitthvað öryggi sem gæti verið að stríða mér þó ég held ég hafi leitað af mér allan grun með það.
ég hef heyrt að það sé einhver dagljósabúnaður sem dimmir þessi ljós þegar misnunandi birtuskilyrði eru við, og hvort það hafi þá bilað eða hvort menn kannist eitthvað við þetta vandamál.

kv.Einar.
það er skynjari í frammrúðuni þar sem spegillinn er.
þessi skynjari stjórnar miðstöð, ljósum í mælaborði, rúðuþurkum og svo frammvegis..
settu svart teip yfir þennan skynjara. þá poppa inn ljósin í mælaborðinu. en þú hinsvegar tapar létingjanum á rúðuþurkunum. sem er svosem í lagi því létinginn á ruðuþurkunum er aldrei eins og maður vill hafa hann :lol:

ef þetta virkar ekki, þá veit ég ekki hvað skal gera..

miðstöðin í gamla E-classinum minum W211 boddy. blés bara köldu og létinginn dó allveg og ljósin í mælaborðinu voru dauf.
en þegar ég lét teip yfir skynjarann á meðan ég beið eftir nyjum, þá hélt bíllinn að það væri nótt og engin rigning. þannig að hann fór að blása eftir hitastillingunum á miðstöðini, og ljósin urðu skær í mælaborðinu, en létinginn virkaði ekki..

en þegar þú færð nyjan skynjara. þá verður billinn mjög sniðugur aftur :D
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur
cron