Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang

#11
DarkHelmet skrifaði:Hef fengið ágiskun á það hjá einum þjónustuaðila MB hér á Akureyri að þetta sé bensíndælan.

Hvað segið þið um það? Líklegt?
Það er möguleiki. Það er bakflæðisventill í bensíndælunni sem gæti verið farinn. Sá ventill á að halda þrýstingi á kerfinu eftir að þú drepur á bílnum. Ef hann er að tala um að dælan sé slöpp þá hefði ég haldið að bíllinn ætti að vera kraftlaus eða jafnvel missa úr á hærri snúningum. Hagar hann sér þannig?

#12
joolli skrifaði:

Það getur alveg verið. Var að fá þennan og hef alveg keyrt kraftmeiri V6 3.2 bíla um ævina. :)

Hann vildi nú meina að þetta myndi ekki skaða bílinn. Einhver hætta á því að það gerist? Er að leggja í ferðalag austur á firði á morgun og því gott að vita hvort ég sé nokkuð að fara skemma vélina. :)

Edit: Gleymdi að nefna það að mér finnst hann frekar grófur í lausaganginum en það gæti kannski eitthvað tengst stærð vélarinnar? Eins þegar maður er með hann í drifi og stendur á bremsunni og losar hana hægt og rólega þá höktir bíllin á stað.

Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang

#13
DarkHelmet skrifaði:
joolli skrifaði:
DarkHelmet skrifaði:Hef fengið ágiskun á það hjá einum þjónustuaðila MB hér á Akureyri að þetta sé bensíndælan.

Hvað segið þið um það? Líklegt?
Það er möguleiki. Það er bakflæðisventill í bensíndælunni sem gæti verið farinn. Sá ventill á að halda þrýstingi á kerfinu eftir að þú drepur á bílnum. Ef hann er að tala um að dælan sé slöpp þá hefði ég haldið að bíllinn ætti að vera kraftlaus eða jafnvel missa úr á hærri snúningum. Hagar hann sér þannig?
Það getur alveg verið. Var að fá þennan og hef alveg keyrt kraftmeiri V6 3.2 bíla um ævina. :)

Hann vildi nú meina að þetta myndi ekki skaða bílinn. Einhver hætta á því að það gerist? Er að leggja í ferðalag austur á firði á morgun og því gott að vita hvort ég sé nokkuð að fara skemma vélina. :)
Þetta gæti þá líka verið bensín sían. Þú ætti bara að fara með hann á verkstæði og láta lesa af honum og láta mæla bensínþrýstinginn. Þá geturu annaðhvort útilokað innspýtingarkerfið eða lagað sem er að því. :)

Ef eitthvað er að innspýtikerfinu þá gæti það t.d. skaðað hvarfakútinn. Hann getur ofhitnað og við það bráðar hann og stíflast. Spíssarnir þurfa réttan þrýsting til að ná að spýta fínum úða sem svo sogast inn í sprengirýmið. Þú vilt ekki að þeir dropi því þá brennur aðeins hluti af eldsneytinu og það fer út í púst og gæti s.s. skaðað hvarfakútinn. Þú eflaust veist að hvarfakútur fæst ekki gefins í varahlutaverslunum? :D
cron