C320 W203 vesen með bílstjórarúðu

#1
þannig er mál með vexti að rúðan virkar ekki, get ekki haggað henni hún fer hvorki upp né niður og er sem sagt pínu opin og það virðist alveg ómögulegt að taka hurðaspjaldið úr, mér var sagt að þetta er ekki mótorinn. er bara best að fara með hann í öskju og láta þá kíkja á hann eða ?


bendir vinstri og segir hægri!!!!!!

M.benz 230E '89 er seldur;)

Re: C320 W203 vesen með bílstjórarúðu

#2
Þetta kom fyrir hjá mér á E280 (W210). Það þurfti að endurstilla "control unitið".

Gæti verið sama vandamál.

Einfaldast sennilega að taka geymasambandið af og á aftur. Það leysti málið hjá mér.

Svo er bara að fara með stýrið í bæði borð eftir gangsetningu til að stilla þá nema ef þeir eru. Og svo ef rúðan virkar þá er að stilla hana með þvi að fara alveg niður og svo alveg upp.

En það getur verið fleira að, t.d. rofinn, prófa að skipta yfir á annan rofa til að athuga það.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.