Læsingar hegða sér einkennilega á C124

#1
Eftir að hafa verið mikill Mercedes-Benz aðdáandi frá því að ég man eftir mér keypti ég mér minn fyrsta Benz um daginn, 1993 árgerð af 300CE 24v Sportline og er mjög ánægður svo að vægt sé til orða tekið. Bý eflaust til þráð inn á Bílar spjallverja í næstu viku þegar prófin klárast. :)

En ég var að velta því fyrir mér hvort það væri einhver sérstök kúnst við að opna svona C124?
Ég er með tvo lykla og skyldist á þýska manualnum að annar eigi að ganga að öllu en hinn öllu nema svissnum. Aftur á móti passar svisslykillinn bara í bílstjórahurðina (og náttúrulega svissinn) og mér finnst ósköp handahófskennt hvort að hann opnar allt eða bara bílstjórahurðina. Hinn lykillinn hinsvegar gengur að öllu nema svissnum en það er líka frekar handahófskennt með hann hvort að hann opnar allt eða bara bílstjórahurðina þegar að hann er notaður þar, en sé hann notaður farþegamegin þá opnast alltaf allt. Þetta er svosem allt í lagi, en mér finnst þetta nú samt frekar skrýtið... en annað sem mér finnst heldur skrýtnara er þegar að hann tekur upp á því að opna ekki bara allar hurðar og skottið heldur renna allar rúður niður í leiðinni. :? :?:

Ég vona að þetta sé skiljanlegt og beini þá spurnum mínum að sérfræðingunum hérna.
Endilega ef þið getið sagt mér eitthvað um þetta, þá er það vel þegið.


Re: Læsingar hegða sér einkennilega á C124

#3
Ef þú heldur lyklinum lengi inni þegar þú aflæsir opnar hann rúður og topplúgu. Þegar þú heldur honum lengi í læsingu lokar hann rúðum og topplúgu. Þetta var eins langt og "Comfort control" náði í þessum árgerðum.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004