Re: E320CDI 2000, kraftlaus.

#2
1. Snýst mótorinn á fullan snúning ef þú stendur hann í botni?

2. Heyrir þú áberandi blásturshljóð í akstri.

3. Hvað er hráolíusían gömul?

4. Hvað er bíllinn ekinn?

5. Hefur smurþjónustu alltaf verið sinnt á réttum tíma?

6. Hvað er mikið slag í túrbínunni?
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: E320CDI 2000, kraftlaus.

#3
1. Snýst mótorinn á fullan snúning ef þú stendur hann í botni?

2. Heyrir þú áberandi blásturshljóð í akstri.
Nei
3. Hvað er hráolíusían gömul?
Þekki það ekki, en það var skipt um hana í dag.
4. Hvað er bíllinn ekinn?
312.000
5. Hefur smurþjónustu alltaf verið sinnt á réttum tíma?
Já á 30.000km fresti
6. Hvað er mikið slag í túrbínunni?
Er ekki búinn að skoða það.

En bíllinn fór á verkstæði í dag og það fanst illa brunnið tengi, sennilega á sensorinn við lofthreinsarann sem ég er að giska á að sé loftflæpiskinjarinn.

Þetta skyrist sennilega á morgunn.

Kv Atli

Re: E320CDI 2000, kraftlaus.

#4
Sælir.

Það kom í ljós á plöggið að ég held við MAF skynjarann var illa brunnið, það er búið að laga plöggið en bíllinn ennþá mjög mátlaus.

Ég hugsa að ég láti skipta um MAF skynjarann næst. Veit eithver hvort það séu eithver öryggi sem gætu hafað farið? Á eithver teikninar af þessu?

Takk fyrir

Kv Atli