Uppgerð á fjöðrunarramma W124 (nýjar stífur)

#1
Sælir

Ég held áfram stefnu minni um það að gera ALLT eða ekkert. Nýjasti afraksturinn er að hafa keypt allt mekanískt í E200/E220 (M111), vél, skiptingu og allann afturhjólabúnaðinn. Það tekst líklegast í kringum sumarið að fara að raða í þetta, fyrsta skrefið er búið og það er að rífa nánast allt saman úr þessu, á bara eftir að taka gúmmífóðringar úr stellinu.

Það fara í þetta nýjar legur, hosur, boltar, gúmmífóðringar, stífur, handbremsusett. Einnig ef einhver veit um E420/E500 (einnig W140, S420-S600 ) bremsur, 4 stimpla að framan með 300-320 mm diskum (stærra bremsukerfið) þá vantar mig það !

Næst verður farið með þetta í sandblástur, einhverjar ráðleggingar varðandi það ?
Þar á eftir er pæling að setja húð á þetta, heit galvenisera þetta, lakka, eða pólýhúða, eða jafnvel setja zink húð og pólýhúða yfir það ?

Einnig pæling, er hægt að fá alla þessa bolta ryðfría ?

[img]http://www.simnet.is/hlynzi/benz/subframe/1.jpg[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/benz/subframe/2.jpg[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/benz/subframe/3.jpg[/img]
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/benz/subframe/4.jpg[/img]
Seinast breytt af Hlynzi þann 23 Des 2013, 18:58, breytt 4 sinnum alls.

Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma (rear subframe) í W124.

#3
Jæja, nú skrapp ég með rammann í bíladoktorinn þar sem restin af gúmmípúðunum verður fjarlægð.

Svo verður ramminn sendur í sandblástur, og svo eftir það fer hann í Zink húðun.

Eftir það get ég svo dundað mér að raða í hann öllum nýjum stífum og gúmmífóðringum, það verður mjög áhugavert að finna HVERNIG bíllinn á að haga sér á götunni þegar allt virkar.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma (rear subframe) í W124.

#5
Jæja, þá sótti ég þetta í sandblástur frá Bílasetrinu (í Flugumýri , Mosfellsbæ) áðan, allt orðið grátt og fínt, vona bara að áferðin skemmi ekkert fyrir mér, en þetta er jú undir bílnum svo það skiptir ekki máli, stálið er einnig þykkt og gott, en núna er ég laus við allt ryð.
Svo ég skutlaði rammanum til Ferró Zink í Hafnarfirði og sæki hann fljótlega.
Nafið og það sett verður ekki Zink húðað (nema þá með raf-sinkun) þar sem þar liggur legusætið og einnig nudd við bremsudisk og felgu held ég að það hafi lítið uppá sig að gera það, svo það verður bara málað.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma (rear subframe) í W124.

#6
Og það heldur áfram hérna eru nöfin komin úr blæstri, þau verða máluð, efast um að það henti sérlega vel að setja þau í zink húðun (þ.e. heit-galveneseraða) þar sem leguhúsið myndi fyllast af því.
En ramminn verður vonandi tilbúinn í vikunni, verður spennandi að sjá hvort þetta gangi upp.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma W124 (Tilbúinn úr Zinkhúðun)

#7
Jæja, þá er subframe-ið komið úr Zink húðuninni, kemur ansi vel út.

Það var svo skilið eftir hjá Bíla-Doktornum þar sem allir stólpúðarnir ásamt púðum fyrir drifið verður sett nýtt í það.