190e 2.3 1983 - Týndur lykill

#1
Góðann dag


ég er með Mercedes Benz 190e 2.3 1983 árgerð

lykillinn er týndur af bílnum,, ég er búinn að tala við neyðarþjónustuna og láta búa til lykil eftir kóðanum sem er skráður á verksmiðjunúmerið og sá lykill gengur ekki því miður

ætli það sé ekki bara búið að skipta um sviss og cylendra í bílnum einhverntímann yfir ævina,, þessvegna gengur ekki að láta smíða lykil eftir kóðanum.

spurning hvort einhver eigi til handa mér lykil og sviss úr einhverjum parta bíl

er auðvelt að komast að svissbotninum í þessum bílum uppá að starta með skrúfjárni til að redda sér til að byrja með ?


Kv, Már


BMW E30 ///M3 1986 - S50B32
BMW 530d e39 2003
Mercedes Benz 190e 2.3 1983 - BSK - ESAB
Honda Civic EK 1998
Opel Vectra 1999

-> http://www.e30.is" onclick="window.open(this.href);return false; <

Re: 190e 2.3 1983 - Týndur lykill

#2
Það er töluvert mál að ná þessu úr svissinum ef þú átt ekki lykil. Þess vegna er spurning; gekk sami lykill (og týndist) að hurðunum og skotti? Ef svo er, þá held ég að þú náir þeim örugglega úr án þess að hafa lykil. Góður lyklasmiður getur þá sennilega smíðað lykil eftir læsingu ef þú ferð með eina þerra til hans.
Sveinn

Re: 190e 2.3 1983 - Týndur lykill

#3
Það er nóg fyrir þig að fara með eina skrá úr hurd t.d og láta smíða eftir.Þ.e.a.s ef sami lykill gekk að öllu.

Ég myndi leysa þetta svona frekar en að skemma svissinn.
Eyjólfur Karlsson
--------------------------------------
Mercedes Benz 250S 1968 R42095
Mercedes Benz 290GDT 1985 R16377