Bensíndælan telur ekki við sér

#1
Sælir piltar

Með 94 220e og hann áhvað að drepa á sér, ók í djúpan poll (haf) og um 10 sek seinna drap hann á sér.
þegar ég kom honum á góðan stað tók ég eftir að bensíndælan tekur ekki við sér.
Eitthvað sérstakt sem ég ætti að hafa í huga þér leitað er eftir bilun þegar kemur að óvirkri bensíndælu?
Og ef svo er að dælan sé ónýt, einhver sem veit um eina slíka?

Allar bendingar þakkaðar með fyrirfram þökkum :tumbsup:

Gunni


Re: Bensíndælan telur ekki við sér

#2
Athuga pólana á dælunni (hún er undir bílnum farþegamegin, bakvið stórt svart plastlok), gæti verið að þeir séu enn blautir og skammhleyptir.

Einnig er relay fram í húddi í boxinu bakvið öryggjaboxið sem gæti hafa klikkað.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Bensíndælan telur ekki við sér

#3
Þú getur farið útilokunnar leiðina og farið með ampermælir undir bílinn og athugað hvort dælan sé að fá straum yfir höfuð og unnið þig síðan út frá því...

Og benzindælu relay er farþegameginn á bak við rafgeiminn, við hliðina á tölvunum.(grænt að lit með 10A öryggi)
Eða allavega í mínum bíl...
Þorsteinn Ingólfsson
661-3511


Teip reddar þessu...


M Benz E220 ´94 Sportline

Re: Bensíndælan telur ekki við sér

#5
Gunni84 skrifaði:Sælir piltar

Með 94 220e og hann áhvað að drepa á sér, ók í djúpan poll (haf) og um 10 sek seinna drap hann á sér.
þegar ég kom honum á góðan stað tók ég eftir að bensíndælan tekur ekki við sér.
Eitthvað sérstakt sem ég ætti að hafa í huga þér leitað er eftir bilun þegar kemur að óvirkri bensíndælu?
Og ef svo er að dælan sé ónýt, einhver sem veit um eina slíka?

Allar bendingar þakkaðar með fyrirfram þökkum :tumbsup:

Gunni
Rosalega hefur þetta verið djúpur pollur. :twisted:
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.