#5
Ég mæli ekki með pústkerfum frá BJB fyrir Mercedes-Benz bíla þó ég geti hugsanlega gert það fyrir aðrar tegundir bíla. Ég veit um nokkur dæmi þess að menn séu hundóanægðir með þau, hljóðið í bílnum sé úr í hött og hrínglandi í kerfinu eins og eithvað sé laust innan í því. Þau hafa líka í sumum tilfellum verið dýrari er kerfin frá Ræsi sjálfum. Ég get hinsvegar mælt með honum Einari á Smiðjuvegi 50 (rauð gata) Hann er búinn að vera í pústkerfasmíðum í 8 ár, er sanngjarn og kann sitt fag. Hann hefur smíðað fyrir mig kerfi í gamlan bíl sem var listaverk og mjög vel gert. Ég myndi einnig frekar kaupa mér Bosal kerfi frá Bílanaust heldur en þetta að svo er virðist ónýta drasl frá BJB. Athugið að umsögn þessi um kerfin frá BJB er af afspurn en ekki eigin reynslu.


Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#7
Ég held það borgi sig hiklaust að skipta út einum parti. En varðandi óhljóðin í pústi frá BJB, á það þá ekki bara við stærri vélarnar, 6 og 8 strokka?

Ég myndi halda að þetta púst ætti að vera í góðu lagi fyrir 4 strokka bíl eða hvað??? Ég man alveg eftir því að hafa heyrt svona óhljóð í Benzum eftir pústskipti í BJB en kveikti allt í einu á því að ég hef aldrei heyrt svona óhljóð í 190 bíl... bara spurning.
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

#8
Ég hef ekkert vont að segja um BJB, ég ættlaði bara að benda á þá, þeir smíðuðu opið púst berfi undir 230c bílinn minn (1980) og galant (1992), til dæmis, og það er í góðu lagi. Og við það má bæta að þeir selja líka Bosal kerfi ef mig minnir rétt, en þetta fer bara eftir því hvað þú tímir að borga, auðvitað er hægt að henda bara eitthverju undir og þá heirist kanski undarlegt hljóð, en sangjarnir hafa þeir verið við mig og ef það er til ódýrara annarstaðar (sama stuffið) þá lækkar hann það bara niður fyrir þig
Kallinn virkar dáldið alvörugefinn, en þegar þú talar við hann þá er hann bara allt í lagi
Ég hef enga reinslu af honum Einari áttavillta, nema bara frá því hann var í Borgartúninu, þá var hann dáldið fljótfær kallinn, en það gæti svosem verið að hann hafi róast kallinn eftir að hann fann guð
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

#10
1: hjólalega að framan: ekkert mál

2: ískur, veit ekki .. getur verið slit

3: Það er hægt að herða uppá handbremsubarkanum þar sem þeir koma saman úr báðum hjólunum í einn barka, mig minnir að þú þurfir þá að taka pústhlífina frá..
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is
cron