Síða 3 af 3

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 03 Des 2011, 19:24
frá AM
Mér finnst mjög líklegt að hann sé að draga falskt loft inn, t.d í kringum gúmmíin í innspítingunni.

Þegar þú stígur inngjöfina í botn, þá ertu að stoppa að bensín fari inná mótor.
Þannig að ég hefði haldið hann honum vanti loft.

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 04 Des 2011, 18:46
frá olafurf
AM skrifaði:Mér finnst mjög líklegt að hann sé að draga falskt loft inn, t.d í kringum gúmmíin í innspítingunni.

Þegar þú stígur inngjöfina í botn, þá ertu að stoppa að bensín fari inná mótor.
Þannig að ég hefði haldið hann honum vanti loft.
hvar er þessar hosur staðsettar ? á ég kanski bara að skoða allar :P

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 05 Des 2011, 11:10
frá AM
Myndi skoða þær allar, en aðallega stóra gúmmíið undir loftflæðiskynjaranum.

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 05 Des 2011, 12:48
frá JBV
AM skrifaði:Myndi skoða þær allar, en aðallega stóra gúmmíið undir loftflæðiskynjaranum.
Sammála, vard ad skipta um svo til öll gúmmí í mínum 190E árg 1992. Sérstaklega gúmmíid undir loftflæðiskynjaranum.

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 23 Feb 2012, 14:03
frá olafurf
held það hafi verið vandamálið mitt, þessi gúmmí stykki.. nema núna kemst ég ekki að því fyrr en næsta vetur :P
þakka samt fyrir hjálpinu !!

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 12 Mar 2012, 18:05
frá kiddik
Sæll ólafur ég ertu búinn að prófa ís-eiðir í tankinn ???

er með samskonar benz en hann er búinn að vera úti og ekki verið settur í gang í ca 8 mán fer í gang en kokar þegar ég gef honum inn lagaðist aðeins þegar ég setti ísvara á hann.

K/k
kristjan 6962008

hjallavegur14@talnet.is

olafurf skrifaði:Sælir, núna bráðvantar mig hjálp.. ég er með 190E 2.0L bensín bíl og hann er leiðinlegur í kulda. Veit ekki hvort það sé eitthvað tilfinningarlegt hjá greyjinu en þegar hitinn er undir 4 gráðum þá vill hann stundum ekki fara í gang.

Byrjaði fyrir um 2 mánuðum þegar það kom pínu frost, þá fór hann ekki í gang. Vélin snýst þegar ég svissa á en það kemur aldrei "neystinn" til að bíllin hrökkvi í gang en ef ég reyni aftur og aftur í svona 5 mínútur fer hann í gang á hrikalega lágum snúningum (300 - 600 rpm) og deyr eftir svona 5-10 sec. Ef ég snerti bensíngjöfina meðan hann er í svona lágum snúningum deyr hann samstundis en ef ég geymi bílinn í bílskúrnum í einn dag fer hann í gang nó problemmó. Er búinn að fara með hann þrisvar í viðgerð hjá BílaDoktor en án árangurs :( Þeir eru búnir að skipta um eftirfarandi :
-Kerti
-Kertaþræði
-Hamar
-Kol
-Yfirspennu Relay
-Hitaskynjara fyrir Cold Start Valve (CSV)
-Ég skipti um CSV sem breytti engu

(farið að kosta mig góða summu :l )

Batterýs geymirinn er mjög nýlegur og allar tengingar eru í topp standi.
Þið sem eruð klárir á benza endilega komið með ábendingar, er allveg stopp núna !!!

Kv. Óli

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 12 Mar 2012, 20:05
frá Þröstur
Það er ónýtur fjögurra pinna hitaskynjarinn fremst í heddinu, hann segir til um hvenær kaldræsingin á að virka.

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 13 Mar 2012, 08:39
frá olafurf
Er búinn að skipta um þennan hitaskynjara, sulla slatta af ísvara í en á eftir að fara yfir gúmmíin sem ég ætla að gera á næstu vikum. Það er síðasti valmöguleikinn minn áður en maður rífur vélina úr og spaðar hana ^^,

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 13 Mar 2012, 10:09
frá Þröstur
Vittu hvort mótortölvan hafi orðið bráðkvödd. Taktu hana úr sambandi með kaldan bílinn og prófaðu hvort eitthvað breytist, ef ekki skaltu prófa aðra tölvu.

Re: w201, 190E fer ekki í gang í kulda, bráðvantar hjálp!!!!

Innsent: 23 Mar 2012, 22:39
frá ARG22
Gerist þetta bara ef hitastigið fer undir 0 gráður yfir nóttina? ég er bara að spá í hvort að raki nái að þéttast í kveikjulokinu, það er mjög viðkvæmur punktur á þessum M102 mótor. Þetta getur meira að segja verið að gerast í nýlegu kveikjuloki.
Er góður kraftur í honum svona almennt?