Sælir strákar
Ég er með C200 compressor árg. 2002 ekin 138 þús. sem foreldrar mínir eiga, pabbi varð í byrjun okt. var við aflleysi í bílnum og fer í framhaldi af því með bílinn í Baugsbót á Akureyri þar sem var lesið af honum og niðurstaðan var sú að loftflæðineminn væri að gefa sig.
Samkvæmt ráðleggingum frá Guðjóni í D&C var neminn hreinsaður (það hefur víst virkað stundum) og settur í aftur, en ekkert breyttist í hvelli en þó virtist bíllinn lagast smá saman. Í framhaldi af þessu tengi ég bílinn við tölvu sem ég á sjálfur (með carsoft 7,4) og hreinsa út adaptation á ME (vélartölvan). Við þetta verður bíllinn eðlilegur.
Nokkrum dögum síðar er pabbi á leið á bílnum yfir Þverárfjall þegar bíllinn verður drullumáttlaus aftur og hættir að ganga á einum, en byrjar aftur að ganga á öllum eftir að hafa drepið á honum og sett í gang aftur. Á endanum hættir það þó að virka (nokkrum dögum síðar). Þegar þarna er komið er hann að bíða eftir loftflæðinema frá Öskju
Í dag föstudag kem ég norður (með loftflæðinemann) og les aftur af bílnum áður en nýji loftflæðineminn er settur í. Þá fæ ég upp villu á misfire á Cyl 1. Ég þurrka út villuna og hreinsa aftur út adaptation á vélinni, bíllinn gengur áfram bara á einum. Við kippum kertinu úr á cyl eitt og það er vægast sagt handónýtt, iridíum pinninn er horfinn og nánast allt postulínið bráðnað í burtu, ekki skrítið að bíllinn gangi ekki. Að auki var olía ofan í kertaganginum þar sem háspennukeflið stingst ofan í (mér datt reyndar líka í hug að þetta væri drulla sem hefði blætt upp með kertinu en öll hin kertin báru líka með sér að vera ekki alveg þétt lengur, en ég hef grun um að þetta séu upprunalegu kertin)
Gúmmíhulsan á háspennukeflinu var líka orðin frekar ljót í endan og svo virtist vera eitthvað far í plastinu fyrir ofan hana, eins og eitthvað hefði brðaðnað en það gæti svosem líka verið útlitsgalli í keflinu, ég er ekki viss, en þetta var ekki að sjá á hinum sem við skoðuðum.
Næsta varahlutabúð við okkur er bílabúð KS en þar eru iridíum kertin ekki til, við kaupum önnur NGK kerti, þriggja arma með sömu hitatölu og setjum það í bílinn. Hann gengur eins og klukka og það er ákveðið að taka hring eftir að hafa hreinsað villurnar úr vélatölvunni. Þegar stutt er liðið á rúntinn kemur vélaljósið aftur og hann hættir að ganga á einum, og villan í tölvunni sú sama, misfire á cyl 1.
Það sem við erum búnir að prófa er:
-Víxla háspennukeflum (tvisvar)
-Víxla spíssum
-Setja eitt af gömlu kertunum sem virkuðu enn í stað kertisins á cyl 1
Ekkert af þessu gerði neitt gagn, hann hætti alltaf að ganga á einum og kom alltaf með villuna misfire á cyl 1.
Eftir nokkuð marga prufurúnta komumst við að því að vegalengdin á rúntinum skipti engu máli við að fá villuna fram, heldur álagið. Ef bíllin var keyrður eins og við værum á sunnudagsrúnti gekk hann eins og klukka, við keyrðum um 8 kílómetra í eitt skiptið vandræðalaust, en undir mjög litlu álagi ( fórum þó uppí 90-100km/h), þá var prófað að gefa svolítið í og um leið og hann tók við sér hætti hann að ganga á einum og vélaljósið kom, þá var drepið á sett í gang aftur og keyrt í rólegheitunum aftur í skemmuna á öllum cyl.
Nú er ég búinn að gera allt sem mér dettur í hug, eruð þið með einhverjar hugmyndir??
Hér er mynd af villunni sem kemur:
http://www.facebook.com/media/set/?set= ... 535d76d606
C 200 compressor misfire
#1Addi Sig.
Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-
Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-