Re: Vantar aðstoð við að laga M104 mótor

#12
Angelic0- skrifaði:könnum þetta og látum ykkur svo vita...
Þetta er aðgerð nr 1. athuga kveikju (yfirleitt hristist mótorinn í leiðinni) , mæli með því að skrúfa kertið úr og hafa það tengt, og svo jarðtengja það og sjá hvort það neisti ekki alveg örugglega á því.
Einnig hef ég lent í því á E420 sem ég átti að hann gekk ekki alveg nógu vel (hristist mikið) og sprengdi svolítið, ég fór og tók einn kertaþráð úr sambandi í einu þangað til ég fann hvar sambandsleysið var staðsett, skipti um þann þráð og bíllinn varð mjög fínn eftirá.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is