öryggi fyrir rúðuþurrkur í w201 síspringandi....

#1
Rúðuþurrkurnar tóku upp á því að hætta að virka núna í rigningunni. Skoðaði öryggjaboxið og sá að öryggið fyrir rúðuþurrkurnar var sprungið. Skipti um það og þá fór allt í stand. En það sprakk mjög fljótt aftur, ég skipti aftur um og það springur aftur eftir að ég nota þurrkuna 2svar. Það sama gerist þegar ég skipti enn einu sinni um. Bottom line, rúðuþurrkurnar eru óvirkar nema ég skipti um öryggi nokkrum sinnum í hverri bílferð...

Hvað getur verið í gangi???


Stebbi
m.benz 190e sportline 2,0 ´92 (sec wannabe)

bmw e34 m5 3,6. seldur
bmw e34 535i bsk. seldur
kawasaki 650sx stand-up jet ski. selt

Re: öryggi fyrir rúðuþurrkur í w201 síspringandi....

#5
Tók allt þurrkusystemið af og baðaði gjörsamlega í tefllon smurolíu sem ég sprautaði m.a. í gegnum göt sem eru bakvið þurrku-unitið. Dugði ekki þar sem hann sprengir enn öryggin og mér þykir blaðið renna nokkuð ljúft yfir með handafli í það minnsta...

Renndi við hjá bíladoktornum að kaupa bremsuklossa og spurði útí þetta í leiðinni. Þeir veðjuðu á að mótorinn væri kapút ef það dyggði ekki að smyrja. E-r sem á mótor fyrir lítið? Er ekki viss hvort það passa mótorar úr öðrum módelum. Þetta er 92' módelið ef það breytir e-u.
Stebbi
m.benz 190e sportline 2,0 ´92 (sec wannabe)

bmw e34 m5 3,6. seldur
bmw e34 535i bsk. seldur
kawasaki 650sx stand-up jet ski. selt