Halló! Vantar aðstoð
Ég var að eignast BENZ C220 fínan og fallegan bíl með rauðri klæðingu að innan sem er rosalega flott. Ég er í örlitlum vandamálum með "nýja" bílinn sem er árgerð 1993. Ég hef keyrt bílinn í langkeyrslu frá Reykjavík, á Blönduós frá Blönduósi til Akureyrar og frá Akureyri til Blönduósar aftur og er hann svakalega fínn í langkeyrslu, en innanbæjarakstur er frekar leiðinlegur fyrir okkur þar sem bíllinn er ávalt að drepa á sér í hægagangi og þegar hann er á lítilli ferð. Hann kannski heldur sér í gangi í mínútu í hægagangi þá drepst á honum, svo starta ég aftur og hann dettur í gang og mallar í 1 til 2 mín og þá er hann dauður aftur svo þarf ég að halda honum í 1500 snúningum á ljósum svo hann drepi ekki á sér. (Frekar skömmustulegt haha). Að lokum þá sýnir snúningsmælirinn 0 upp í 7000 snúninga 6000+ er rautt (hættumerki) en þegar ég gef honum inn í lausagangi fer hann upp í 5500 snúninga og slær svo út fer aldrei hærra en það.
Að öðru máli með bílinn, er ég set gripinn í gang á auðvitað Hitamælir að fara í gang, Ásamt snúningsmæli, og Bensínmæli. (Hraðamælirinn virkar bókstaflega ekkert) en áðurnefnd atriði vilja hoppa inn eftir að bíllinn hefur verið keyrður eitthver spölin. Tildæmis í dag er ég keyrði frá Blönduósi til Akureyrar þá komu mælarnir inn (Fyrir utan hraðamælirinn) í Varmahlíð og ég veit ekkert hvert vandamálið er þar á bæ. Svo má ekki gleyma KM mælinum sem er ekki hægt að núllstilla hann er fastur í einni tölu sem haggast ekki og mælirinn sem maður getur núllað er bara núllaður og haggast ekki heldur.
Ég kann að skipta um kerti og ég kann að skipta um kveikiþræði og ég kann að skipta um dekk, og smyrja, ég er samt engin viðgerðarkall heldur tölvugúru og því leita ég til ykkar snillingana á STJARNA.IS. Er þetta eitthvað sem ég get gert við eða þarf ég að fara á verkstæði? Veit eitthver hvaða stærð af kertalykli ég þarf í þennan bíl? Er möguleiki að skipta um mælaborðið sjálft? (Ef svo er eitthvern tengil með teikningum af því hvernig í fjandanum maður nær mælaborðinu úr svona bílum).
Hlakka til svara.
Virðingafyllst
C220
Re: MERCEDES BENZ C220
#2Sennilega erum við að horfa á jarðsamband í mælaborðinu, kertin gætu verið orðin slöpp og jafnvel þræðirnir líka. ég veit ekki með c-týpuna en ég er með 96 E bíl og mælaborðið er hreinlega smellt inn í. ekkert vesen.
Eddi Grétars
M.Benz E220d w210 diesel
M.Benz E220d w210 diesel
Re: MERCEDES BENZ C220
#3Það sama á við um W201 (190E). Held að þetta sé svona í þeim flesstum.eddigr skrifaði:Sennilega erum við að horfa á jarðsamband í mælaborðinu, kertin gætu verið orðin slöpp og jafnvel þræðirnir líka. ég veit ekki með c-týpuna en ég er með 96 E bíl og mælaborðið er hreinlega smellt inn í. ekkert vesen.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019
GSM:6990019