OM603 incjectors pæling

#1
Vélin í bílnum er ekin um 450.000km og hljómar ekki ósvipað og þessi : http://www.youtube.com/watch?v=S_hl2Mh7 ... re=related
smá svona "glamur" frá lausagangi upp í 13-1500rpm, svo mjög þíð og flott hljóð. Miðað við það sem ég les á netinu er það vísbending um að dísurnar séu orðnar slappar og tími til að skipta um þær.
Ég er að spá í BOSIO spíssum frá http://www.dieselgiant.com/diesel_parts ... %20Nozzles
Hafa menn einhverja reynslu af svona dísum eða mæla kannski með öðrum?
Annað, þegar skipt er um spíssa, þarf að stilla olíuverkið og tíma upp á nýtt? Ef svo, hvert er gott að fara með bílin til slíks?
kv
Eyjólfur


Re: OM603 incjectors pæling

#2
Tímakeðja þykir mér líklegri, glamrar í hægagangi og hættir því þegar snúningur eykst.

Ef dísur væru slappar þá myndi það ekki leyna sér í gangsetningu, reykur og ójafn gangur sem myndi jafna sig fljótlega líkt og þegar glóðarkerti er ónýtt.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: OM603 incjectors pæling

#3
Hann á það einmitt til að ganga dáldið truntulega lausagang við kald-ræsingu, sérstaklega ef hann er að brenna steinolíu. Hann fékk einhver ný glóðarkerti ekki fyrir svo löngu.
Einnig reykir hann nokkuð svona bláum reyk.
6 Bosch dísur frá vélalandi kosta um 7600kr stykkið svo það væri smá kostnaður í að endurnýja þær.
Að skipta um tímakeðju og það sem snertir hana, er það ekki verk sem þarf helst kunnáttu menn til að framkvæma?

Re: OM603 incjectors pæling

#4
eyjo77 skrifaði:Annað, þegar skipt er um spíssa, þarf að stilla olíuverkið og tíma upp á nýtt? Ef svo, hvert er gott að fara með bílin til slíks?
kv
Eyjólfur
Þú þarft ekki að stilla olíuverkið, en það þarf að stilla spíssana, og gæta ÝTRASTA hreinlætis, ef það kemur þó ekki sé nema smá korn í lögnina að spíss, stíflast spíssinn og nýja dísan verður samstundis jafn ónýt og sú sem var fjarlægð, ef ekki bara stífluð.

En glamur er sjaldnast spíssum að kenna, en þú getur prófað að setja tvígengis olíu út í næsta olíutank hjá þér, hún minnkar oft óeðlilegt spíssaglamur í eldri vélum.

Tímakeðjan er mun líklegri og gæti jafnvel verið bara drulla í strekkjaranum
Addi Sig.

Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-

Re: OM603 incjectors pæling

#5
Það er nákvæmlega sama hljóð í mínum gamla 300 turbo diesel. Ég er búinn að skipta um dísur í spíssum, tók upp heddið líka og skipti um undirliftur, er einnig búinn að reyna ýmis dísel hreinsi efni en það er ennþá sama hljóðið í vélinni. Er farinn að halda að þetta eigi bara að vera svona enda hef ég aldrei heyrt öðruvísi hljóð úr neinum öðrum OM 603 mótor.
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu
cron