W124 Leiðindar bilun

#1
Sælir félagar

Ég er með w124 200E árg 89 sem á það til að drepa á sér svona þegar honum hentar og vill ekki fara í gang aftur nema maður bíði í ca. 30 sek. þá heyrist suðið í bensíndælunni og þá fer bíllinn í gang.
Mig grunaði strax dælurelayið og skipti því út fyrir öðru notuðu, en bilunin er en til staðar :?
Er ég kannski með 2 relay með sömu bilun eða er eitthvað annað sem er að?
Já og það má kannski fylgja sögunni að þetta byrjar að hrjá bílinn eftir að hann stendur óhreyfður í tæp 2 ár.

kv Sigurjón


____________________
Sigurjón Þór Þrastarson
S: 868-3473

Re: W124 Leiðindar bilun

#2
Prófaðu að skoða yfirálagsrelay sem er í hvalbaknum hjá rafgeyminum . Tekur þarna plasthlífina hjá geyminum og þar á bakvið eru tölvurnar og nokkur relay .
Þetta er grátt og rautt með glæru loki að ofan sem hylur 2X10amp öryggi .
Minn lét svona , og var með fleiri leiðinlega kæki . Þá var annað öryggið sprungið ..
Hefur t.d áhrif á eyðslu ...
Trausti Ásgeirs .. 896-2992
Mercedas Benz 300E 4 matic.

Re: W124 Leiðindar bilun

#3
NEI NEI....!

Lagaðu bara það sem er að.!!! Bensínsían er orðin, eða hefur eitthverntíman verið orðin, blindstífluð og er búinn að eyðileggja bensíndæluna. Vegna þessa tekur hún of mikin straum og spennufjöðurin í relayinu er að hitna vegna of mikils straumflutnings og slá út. Gallinn er sá að þegar að relayið verður fyrir þessum óskunda og óhappi að þá er það eiginleg ónýtt eða mikið skemmt og getur brugðist þó hitt sé komið í lag.

Semsé... Skipta um dælu, síu og helst relayið líka.

Varahlutir eiga að vera til hjá okkur í Bíla-Doktornum.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: W124 Leiðindar bilun

#4
Mercedes-Benz skrifaði:NEI NEI....!

Lagaðu bara það sem er að.!!! Bensínsían er orðin, eða hefur eitthverntíman verið orðin, blindstífluð og er búinn að eyðileggja bensíndæluna. Vegna þessa tekur hún of mikin straum og spennufjöðurin í relayinu er að hitna vegna of mikils straumflutnings og slá út. Gallinn er sá að þegar að relayið verður fyrir þessum óskunda og óhappi að þá er það eiginleg ónýtt eða mikið skemmt og getur brugðist þó hitt sé komið í lag.

Semsé... Skipta um dælu, síu og helst relayið líka.

Varahlutir eiga að vera til hjá okkur í Bíla-Doktornum.
Bin there. :| Hlusta á doktorinn, hann veit hvað hann syngur. :wink:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019