Spindilkúla í W210

#1
Sælir drengir

Nú væri gott ef einhver gæti ausið úr viskubrunninum.
Það er ónýt hjá mér efri spindilkúla farþegamegin í bílnum hjá mér (e 320 4matic '00)
Ég fór útum allt í dag í leit að varahlut og fann ekkert, Stilling á stykkið fyrir afturdrifnu bílana en það var fullyrt við mig í dag að það passaði ekki, nú líta stykkin eins út á mynd og ég er líka búinn að gera dauðaleit á netinu að varahlut, nokkur af stykkjunum sem ég fann eiga að passa í báðar gerðirnar. Veit einhver hérna í hverju munurinn liggur??

Ég verð að viðurkenna að það verður meira og meira freistandi að kaupa rangan hlut og hreinlega sjóða nýju kúluna á gamla arminn (ég veit að það er dauðasynd að minnast á þannig fúsk)

Kveðja
Addi


Addi Sig.

Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-

Re: Spindilkúla í W210

#2
Það er ekkert annað að gera en að sturta úr veskinu á borðið hjá Öskju og kaupa þetta. Hvað ertu búinn að eyða miklum tíma og peningum í að leita að einhverju sem þér var sagt í morgun að þú finndir ekki?? Efri kúlan úr afturhjóladrifnum bíl passar ekki í 4matic.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: Spindilkúla í W210

#3
Laurel skrifaði: Ég verð að viðurkenna að það verður meira og meira freistandi að kaupa rangan hlut og hreinlega sjóða nýju kúluna á gamla arminn (ég veit að það er dauðasynd að minnast á þannig fúsk)

Kveðja
Addi
Sumir eiga aldrei að koma nálægt viðgerðum eða þá að eiga bíl. Að detta svona lagað í hug.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Spindilkúla í W210

#4
Rólegir á skítkastinu

Ég átti von á því að fá svör á þessu spjalli, ekki útúrsnúninga og afþvíbara!!, ég er alltof oft búinn að fá rangar upplýsingar (fullyrðingar) sem kosta mig tíma og peninga útaf því að ég trúði þeim þegjandi og hljóðalaust, og gerði eins og mér var sagt, þar sem þær komu frá reyndari mönnum sem áttu að vita betur
Þröstur skrifaði:Það er ekkert annað að gera en að sturta úr veskinu á borðið hjá Öskju og kaupa þetta. Hvað ertu búinn að eyða miklum tíma og peningum í að leita að einhverju sem þér var sagt í morgun að þú finndir ekki?? Efri kúlan úr afturhjóladrifnum bíl passar ekki í 4matic.
Stykkið er ekki til í Öskju, né nokkurstaðar annarsstaðar, Bíla-doktorinn segist ekki geta pantað þetta fyrir mig.
Þar að auki minnist ég þess ekki að neinn hafi sagt við mig í gær að þetta væri hvergi finnanlegt
BaraBenz skrifaði:Sumir eiga aldrei að koma nálægt viðgerðum eða þá að eiga bíl. Að detta svona lagað í hug.
En það er greinilegt að þið hafið aldrei kynnst því að þurfa að bjarga ykkur með það sem þið eruð á með milli handanna vegna þess að það er mánuður í næstu höfn.

Fleiri svona svör eru afþökkuð, það er nokkuð greinilegt hér að ofan hvaða upplýsingum ég er að leita að.
Ef ykkur líður eitthvað illa getið þið beint reiðinni eithvað annað
Við erum ekki inná Barnalandi
Addi Sig.

Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-

Re: Spindilkúla í W210

#5
Laurel skrifaði:Við erum ekki inná Barnalandi
Nákvæmlega!

Þekki ekkert til þessa búnaðar sem þig vantar né hvernig gera á við þetta dót.

Hefði ekki verið einfaldara að segja bara að þetta væri ekki hægt og að hann yrði að kaupa þetta hjá Öskju, fengist ekki annarsstaðar?

Það eina sem ég get sagt þér Addi Sig. að Askja, Bíla-Doktorinn og Stilling veita félagsmönnum afslátt á varahlutum.
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Spindilkúla í W210

#6
Benni skrifaði:Það eina sem ég get sagt þér Addi Sig. að Askja, Bíla-Doktorinn og Stilling veita félagsmönnum afslátt á varahlutum.
Takk fyrir það, ég er að bíða eftir svari frá Stillingu um hvort þeir geti reddað þessu, ég geri samt ekki ráð fyrir því, það virðast enginn framleiða þetta stykki nema benz.

Annars er bara að láta Öskju panta þetta með hraði, ég verð að skipta um þetta eða skítamixa áður en ég fer útá sjó næst, þessvegna er ég að pæla í muninum, hvort hann liggur í því að kónninn er öðruvísi, stykkið öðruvísi í laginu eða sverleikinn/lengdin á boltanum í fóðringunni, best væri ef þetta væri munur á fóðringum, þá mætti smíða aðrar fóðringar til að redda sér......
Addi Sig.

Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-

Re: Spindilkúla í W210

#7
Það er rétt að við erum ekki á barnalandi.

Mér finnst að menn eigi að vera ábyrgari hér.

Þú talar um:
Laurel skrifaði:kaupa rangan hlut og hreinlega sjóða nýju kúluna á gamla arminn (ég veit að það er dauðasynd að minnast á þannig fúsk)
og
Laurel skrifaði:skítamixa áður en ég fer útá sjó næst, þessvegna er ég að pæla í muninum, hvort hann liggur í því að kónninn er öðruvísi, stykkið öðruvísi í laginu eða sverleikinn/lengdin á boltanum í fóðringunni, best væri ef þetta væri munur á fóðringum, þá mætti smíða aðrar fóðringar til að redda sér......
Það hafa orsakast dauðaslys út af svona skítmixi. Alla vega léti ég ekki nokkurn mann keyra bíl sem hefði verið skítmixaður á þennan máta. Það væri enn meiri dauðasynd.

Hver á að keyra bílinn á meðan þú ert á sjónum?

Þetta er öryggisatriði fyrir alla. Líka aðra í umferðinni.

Mér finnst bara rétt að letja þig frá þessari skítmix framkvæmd
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Spindilkúla í W210

#8
BaraBenz skrifaði:Það er rétt að við erum ekki á barnalandi.

Mér finnst að menn eigi að vera ábyrgari hér.

Þú talar um:
Laurel skrifaði:kaupa rangan hlut og hreinlega sjóða nýju kúluna á gamla arminn (ég veit að það er dauðasynd að minnast á þannig fúsk)
og
Laurel skrifaði:skítamixa áður en ég fer útá sjó næst, þessvegna er ég að pæla í muninum, hvort hann liggur í því að kónninn er öðruvísi, stykkið öðruvísi í laginu eða sverleikinn/lengdin á boltanum í fóðringunni, best væri ef þetta væri munur á fóðringum, þá mætti smíða aðrar fóðringar til að redda sér......
Það hafa orsakast dauðaslys út af svona skítmixi. Alla vega léti ég ekki nokkurn mann keyra bíl sem hefði verið skítmixaður á þennan máta. Það væri enn meiri dauðasynd.

Hver á að keyra bílinn á meðan þú ert á sjónum?

Þetta er öryggisatriði fyrir alla. Líka aðra í umferðinni.

Mér finnst bara rétt að letja þig frá þessari skítmix framkvæmd
Ég ætla ekki að tíunda mína hæfileika hér, en ég treysti mér vel til að gera þetta þannig að það sé að minnsta kosti jafn sterkt og nýja stykkið, annars dytti mér þetta ekki í hug, en það er skárra af tvennu illu að þurfa að sjóða á þetta aðra spindilkúlu en að þetta fljúgi í sundur út á þjóðvegi vegna slits. Það er áhætta sem ég tek ekki, eftir að hafa séð hversu slitin kúlan er.
Spurningin er hvort ég get fengið nýtt stykki innan þess tímaramma sem ég hef, ef ekki verð ég að fara þessa leið.
Addi Sig.

Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-

Re: Spindilkúla í W210

#9
Ef einhver hefur áhuga á að vita þetta, þá liggur munurinn á þessum spyrnum í því að það er stærri sveigur á 4matic spyrnunni en 2wd spyrnunni, í 4matic bílnum þarf armurinn að fara bæði utanum dempara og gorm, en á 2wd bílnum fer armurinn bara utanum demparann.
Afstaða milli fóðringar og spindilkúlu virðist vera sú sama, í sjálfu sér hefði verið lítið sem ekkert mál fyrir Benz að smíða sömu spyrnuna í báða bílana, en 2wd spyrnan er drasl smíði miðað við 4matic spyrnuna sem skýrir sjálfsagt verðmuninn, en það er lítið mál að breyta 2wd spyrnunni þannig að hún passi, og verði jafn sterk og 4matic spyrnan
Addi Sig.

Mercedes Benz E 320 4matic '00 -UK-970-
Toyota Hilux X-tra cab '90 -XE-557-
Suzuki GSX 1300 R Hayabusa '07 -NÓGPWR-
Honda CBR 1000F '87 -IK-811-