Sælir. Ég asnaðist til að kaupa mér '97 musso með 230 benz krami. SSK.
Og að sjálfsögðu er eitthvað bilað, nema hvað...
Lýsir sér þannig að stundum er ekkert að, en af og til drepur hann á sér. Áður en hann drepur á sér er eins og að hann gangi bara á 2-3 sílendrum og er ekki séns að koma honum upp á snúning. Það er búið að skipta um háspennukefli, og ekkert breyttist.
Svo dugar oftast að starta aftur (tekur þó margar tilraunir) og þá gengur hann áfram (engin regla á því hvenær að hann stoppar aftur.)
Ég gat vel keyrt hann fyrir um viku (búinn að eiga hann í rúma viku). Setti hann inn í skúr og geymdi í 4-5 daga og svo eftir að ég fór að nota hann aftur er hann alltaf að drepa á sér. Hann drap á sér tvisvar á leið í vinnuna í gær og þrisvar á leið til baka, en hann skröllti þetta áfallalaust í dag...
Mér datt fyrst í hug stífluð bensín sía eða léleg bensín dæla, en fyrst að hann gengur á 2-3 sílendrum getur það varla verið.
Semsagt, hvað er að þessu? Einhverjar hugmyndir?
Re: Bilað benz dót.
#2Mótorlúm eða yfirspennurelay.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com
600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000
tr105@outlook.com
600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000
Re: Bilað benz dót.
#3ég lenti í svipuðu með minn, þá voru það tengingar undir bílstjórasætinu minnir mig eitthvað fyrir mótortölvuna, spansgræna og lélegur frágangur frá framleiðanda,
man þetta ekki alveg, 10 ár síðan ég átti mússó bensín
man þetta ekki alveg, 10 ár síðan ég átti mússó bensín
Victor Logi Einarsson
Re: Bilað benz dót.
#4Takk fyrir þetta.
Ég skipti um bensínsíu (5 fukking þús, 1 sía, takk fyrir) og þetta skánaði alveg helling! Hann drepur mun sjaldnar á sér og ríkur í gang ef ég starta honum eftir að hann drepur á sér.
Kíki á yfirspennurelay og hvort að ég sé eitthvað áberandi að lúminu. Jú og kíki á spansagrænuvesenið líka.
Takk.
Ég skipti um bensínsíu (5 fukking þús, 1 sía, takk fyrir) og þetta skánaði alveg helling! Hann drepur mun sjaldnar á sér og ríkur í gang ef ég starta honum eftir að hann drepur á sér.
Kíki á yfirspennurelay og hvort að ég sé eitthvað áberandi að lúminu. Jú og kíki á spansagrænuvesenið líka.
Takk.