E250D : Hitaravandamál og fleira

#1
Sælir,
Hitarinn í benzanum mínum er eitthvað að stríða mér, stundum kviknar hitaraljósið ekki, stundum er það eðlilegt, og stundum kviknar það þegar bíllinn er kominn í gang..

Annað vandamál er viðvarandi kraftleysi, ég geri mér grein fyrir að þetta er 90 hestafla bíll með sjálfskiptingu. en þegar hann er kaldur er hann stundum svo kraftlaus að hann fer ekki af stað, sérstaklega í möl eða öðru grófu undirlagi

það þriðja er hvað skiptingin er "gróf" getur samt verið tengt kraftleysinu því maður þarf að standa hann í botni til að hann hreyfist, en hann svona kippist til milli þrepa..

nú sit ég með poppið og bíð eftir ráðum


Jeep Cherokee 44"
E250D 715000km

Re: E250D : Hitaravandamál og fleira

#2
250D er ruddamótor. En stundum þarf að skipta um eldsneytissíju þegar sú gamla hleypir ekki nema 50 hestöflum af olíu í gegnum sig, og jafnvel minna þegar olían er köld. Muna að skipta líka um grófsíjuna sem er yfirleitt fyrir eldsneytisdæluna.

Þetta með hitaraljósið er líklega vegna þess að eitt eða fleyri glóðarkerti eru orðin ónýt, þá kviknar hitaraljósið bara þegar vélin er komin í gang og logar í 1-2 mínútur.

Varðandi skiptinguna þá myndi ég skoða vakúmkerfið. Ef skiptingin fær ekkert vakúm þá heggur hún eins og andskotinn. Gæti líka hjálpað að skipta um olíu og síju á skiptingunni.

Góðar stundir.
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: E250D : Hitaravandamál og fleira

#3
Sæll bragi, þakka svörin, en ég er að hugsa um að skjóta á þig áframhaldandi spurningum

Fór með bílinn í smur fyrir sirka 1500km síðan, og man ekki betur en þeir hafi skipt um hráolíusíu líka, þarf að lesa smurbókina til að rifja það upp, er eitthvað annað klassískt sem þarf að skoða, svona ef ske kynni að þetta sé ekki sían?

borgar sig að skipta um öll kertin eða á ég að dunda mér við að viðnámsmæla þau til að komast að því hver þeirra séu í lagi?
Jeep Cherokee 44"
E250D 715000km

Re: E250D : Hitaravandamál og fleira

#4
Ravish skrifaði:Sælir,
Hitarinn í benzanum mínum er eitthvað að stríða mér, stundum kviknar hitaraljósið ekki, stundum er það eðlilegt, og stundum kviknar það þegar bíllinn er kominn í gang..

Annað vandamál er viðvarandi kraftleysi, ég geri mér grein fyrir að þetta er 90 hestafla bíll með sjálfskiptingu. en þegar hann er kaldur er hann stundum svo kraftlaus að hann fer ekki af stað, sérstaklega í möl eða öðru grófu undirlagi

það þriðja er hvað skiptingin er "gróf" getur samt verið tengt kraftleysinu því maður þarf að standa hann í botni til að hann hreyfist, en hann svona kippist til milli þrepa..

nú sit ég með poppið og bíð eftir ráðum


Til hamingju með nýja bílinn félagi :tumbsup2:
Guðjón Bjarni

Volvo S70 2.5 20v '98
M.Benz E220 ´95
Volvo 240GL injection'91. X2
Mercedes Benz C180 Elegance'99 seldur.
Mercedes Benz E200 '95 seldur
Ford ExplorerXLT Executive'96 seldur.
Ford Explorer XLT 5.0 V8 '97 seldur
cron